Skráning á kynbótasýningar heldur áfram á miðvikudag
Skráning á kynbótasýningar hefur gengið brösulega en opnað var fyrir skráningar fyrst þriðjudaginn í síðustu viku en oft hefur þurft að loka fyrir skráningar aftur vegna bilunar í kerfinu. Unnið hefur verið að því að koma kerfinu í lag og verður opnað fyrir skráningar aftur á miðvikudaginn 11.maí kl:10:00. RML hefur ákveðið að koma til móts við eigendur og knapa hrossa og hafa bætt við sýningardögum á þær sýningar sem voru orðnar fullar en þetta kemur fram í tilkynningu frá RML sem birtist hér að neðan.
Mikið hefur verið rætt undanfarið um að fá aftur í gegnu birtingu á nöfnum dómara sem sjá um að dæma á hverri sýningu en á fagráðsfundi síðastliðið fimmtudagskvöld var ákveðið að birta fyrirfram hvaða dómarar sjá um að dæma á hverri sýningu. Það gleðjast eflaust margir yfir þessu.
„Unnið hefur verið hörðum höndum að því að koma skráningarkerfinu í lag. Rétt fyrir hádegi í dag voru keyrðar inn pantanir sem ekki höfðu skilað sér inn í kerfið vegna bilunar. Kerfið verður prufukeyrt í dag og á morgun til að koma í veg fyrir að viðskiptavinir lendi aftur í vandræðum með skráningar.“
„Í viðleitni til að koma til móts við eigendur og knapa hrossa sem hafa hug á að mæta til dóms á þær sýningar sem þegar eru fullar, hefur sýningardögum á völdum sýningum verið fjölgað.“
„Á fagráðsfundi síðastliðið fimmtudagskvöld var ákveðið að birta fyrirfram hvaða dómarar sjá um að dæma á hverri sýningu.
Ef spurningar vakna er hægt að hringja í aðalnúmer RML eða senda tölvupóst á [email protected]“www.rml.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH