Niðurstöður frá WR íþróttamóti Geysis

  • 15. maí 2022
  • Fréttir
Flottar sýningar og góðir tímar í kappreiðunum

WR íþróttamót Geysis fór fram um helgina en mótið var vel sótt og var mikið um flottar sýningar. Boðið var upp á tölt, slaktaumatölt, fimmgang, fjórgang og skeiðgreinar í öllum flokkum.

Hér er hægt að sjá niðurstöður frá mótinu

Meistaraflokkur

Viðar Ingólfsson vann töltið T1 í meistaraflokki á Þór frá Stóra-Hofi með 8,50 í einkunn en Viðar vann líka fimmganginn F1 á Kunningja frá Hofi með 7,43 í einkunn. Fjórgang V1 vann Eyrún Ýr Pálsdóttir á Veröld frá Dalsholti með 7,70 í einkunn og í slaktaumatöltinu T2 voru þeir jafnir í efsta sæti Teitur Árnason á Nirði frá Feti og Jóhann Kristinn Ragnarsson á Kvarða frá Pulu með 7,83 í einkunn. Jóhann vann einnig gæðingaskeiðið á Þórvöru frá Lækjarbotnum en þau hlutu 8,13 í einkunn.

Tölt T3 vann Ólafur Þórisson á Ask frá Miðkosti með 7,61 í einkunn en þeir unnu einnig fjórganginn V2 með 7,03 í einkunn. Fimmgang F2 vann Sigursteinn Sumarliðason á Vordísi frá Vatnsenda en þau hlutu 7,10 í einkunn.

1. flokkur

Elín Árnadóttir vann tölt T3 á Prýði frá Vík í Mýrdal með 7,17 í einkunn. Í tölti T4 var einn keppandi og því ekki riðin úrslit en Sanne Van Hezel keppti á Sóldísi frá Fornusöndum og hlutu þær 6,17 í einkunn. Fjórgang V2 vann Vilborg Smáradóttir á Gná frá Hólateigi með 7,00 í einkunn. Sanne Van Hezel vann fimmgang F2 og gæðingaskeiðið á Völundi frá Skálakoti.

Ungmennaflokkur

Töltið T1 í ungmennaflokki vann Signý Sól Snorradóttir á Þokkadís frá Strandarhöfði með 7,72 í einkunn en Signý vann líka slaktaumatöltið T2 á Rafn frá Melabergi með 7,58 í einkunn og fjórganginn V1 á Kolbeini frá Horni I með 7,17 í einkunn. Tölt T3 vann Alicia Marie Flanigan á Feyki frá Gíslholti með 6,50 í einkunn. Herdís Björg Jóhannsdóttir vann fimmganginn F1 á Snædísi frá Fornusöndum II með 6,31 í einkunn. Fjórgang V2 vann Anna María Bjarnadóttir á Sandi frá Miklholti en þau hlutu 6,47 í einkunn. Benedikt Ólafsson vann gæðingaskeiðið á Leiru-Björk frá Naustum III með 7,33 í einkunn.

Unglingaflokkur

Tölt T3 vann Dagur Sigurðsson á Gróu frá Þjóðólfshaga en þau hlutu 7,33 í einkunn. Í slaktaumatölti T4 keppti Apríl Björk Þórisdóttir á Bruna frá Varmá en þau voru einu keppendurnir í greininni. Fjórgang V2 vann Jón Ársæll Bergmann á Gerplu frá Bakkakoti með 6,83 en Jón vann líka gæðingaskeiðið á Völku frá Íbishóli með 6,71 í einkunn.

Barnaflokkur

Elísabet Líf Sigvaldadóttir vann tölt T3 á Sumarliða frá Hárlaugsstöðum 2 en þau hlutu 6,50 í einkunn í úrslitum og vann hún einnig fjórgang V2 á Elsu frá Skógskoti með 6,43 í einkunn. Tölt T7 vann Hákon Þór Kristinsson á Andvara frá Kvistum með 6,17 í einkunn.

Skeið

250m. skeiðið vann Árni Björn Pálsson á Ögra frá Horni I með tímann 22,16. 150m. vann Hans Þór Hilmarsson á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði með tímann 14,23 og 100m. vann Konráð Valur Sveinsson á Tangó frá Litla-Garði með tímann 7,70 sek.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link