Forkeppni lokið á WR móti Sleipnis

  • 21. maí 2022
  • Fréttir

Helga Una Björnsdóttir á Hnokka frá Eylandi stendur efst eftir forkeppni í slaktaumatölti T2. Mynd: Skjáskot af Alendis.is

Næst á dagskrá eru b úrslit og gæðingaskeið

Þá er forkeppni í öllum greinum og flokkum lokið á WR íþróttamóti Sleipnis. Mótið byrjaði á Skeiðleikum skeiðfélagsins á miðvikudaginn og endar á morgun með miklum úrslitdegi en hér fyrir neðan er hægt að sjá dagskránna sem eftir er. Fyrir þá sem ekki komast á Selfoss er sýnt beint frá mótinu á Alendis.is.

Það var brakandi blíða í morgun á Brávöllum á Selfossi þegar fór fram  forkeppni í slaktaumatölti T2 í meistaraflokki en þar stendur efst Helga Una Björnsdóttir á Hnokka frá Eylandi með 8,17  í einkunn. Í ungmennaflokki (T2) er það Védís Huld Sigurðardóttir sem stendur efst eftir forkeppni á Hrafnfraxa frá Skeggsstöðum með 7,70 í einkunn. Keppt var einnig í slaktaumtatölti T4 í unglingaflokki og 1. flokki. 1. flokkinn leiðir Joelle Jeannette Brönnimann á Skorra frá Skriðulandi með 6,63 í einkunn og efst í unglingaflokki er Glódís Líf Gunnarsdóttir á Magna frá Spágilsstöðum með 6,80 í einkunn.

Ungmenni kepptu í tölti T1 og efst eftir forkeppni er Glódís Rún Sigurðardóttir á Drumbi frá Víðivöllum fremri en þau hlutu 7,77 í einkunn.

Einnig var riðin forkeppni í tölti T3 en í 1. flokki stendur efst Elín Árnadóttir á Prýði frá Vík í Mýrdal með 6,80 í einkunn og í 2. flokki er efst Berglind Ágústsdóttir á Framsýn frá Efra Langholti með 6,27 í einkunn. Unglingaflokkinn leiðir Hekla Rán Hannesdóttir á Öglu frá Fákshólum en þær hlutu 7,03 í einkunn. Kirstín Eir Hauksdóttir stendur efst í Tölt T3 í barnaflokki á Þyt frá Skáney en þau hlutu 6,10 í einkunn. Einnig var keppt í tölti T7 í barnaflokki en efstur eftir forkeppni er Haukur Orri Bergmann Heiðarsson á Flugsvin frá Grundarfirði með 5,33 í einkunn.

Niðurstöður frá öllu mótinu

Dagskrá

Laugardagur 21 maí
17:05 B úrslit F1 Meistaraflokkur
17:30 B úrslit T3 1 flokkur
17:50 B úrslit T1 Meistaraflokkur.
18:30 Gæðingaskeið allir flokkar Ungmenni, 1 flokkur, Meistaraflokkur.

Sunnudagur 22 maí

09:00 A úrslit fjórgangur V2 börn.
09:20 A úrslit fjórgangur V2 Unglingar.
09.40 A úrslit fjórgangur V2 2 flokkur.
10:00 A úrslit fjórgangur V2 1 flokkur.
10:30 A úrslit fjórgangur V1 Ungmenni.
11:00 A úrslit fjórgangur V1 Meistaraflokkur.
11:30 Aúrslit Fimmgangur F2 1 flokkur
12:00 Matarhlé.
13:00 A úrslit fimmgangur F1 ungmenna.
13:30 A úrslit fimmgangur F2 Unglinga
14:00 A úrslit fimmgangur F1 Meistaraflokkur.
14:30 A úrslit tölt T7 barnafl.
14:45 A úrslit tölt T3 unglinga.
15:10 A úrslit tölt T3 2 flokkur
15:30 Kaffihlé 16.00 A úrslit tölt T3 börn
16:20 A úrslit tölt T4 unglingar
16:40 A úrslit tölt T4 1 flokkur
17:00 A úrslit tölt T2 ungmenni
17:20 A úrslit tölt T2 meistaraflokkur.
17:40 A úrslit tölt T3 1.flokkur
18:00 A úrslit tölt T1 ungmenna
18:30 A úrslit tölt T1 Meistaraflokkur
19:00 Mótslit.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link