B úrslitum lokið á WR móti Sleipnis
Eyrún Ýr Pálsdóttir og Blængur frá Hofsstaðaseli unnu b úrslitin í fjórgangi V1 í Meistaraflokki. Mynd: Skjáskot af Alendis.is
Öllum b úrslitum er lokið á íþróttamóti Sleipnis en á morgun fer keppni fram í a úrslitum í öllum greinum og hefst dagurinn kl. 9:00 á a úrslitum í fjórgangi V2 í barnaflokki.
Keppt var í b úrslitum í tölti T1, fimmgangi F1 og fjórgangi V1 í meistaraflokki. B úrslitin í tölti vann Steindór Guðmundsson á Hallsteini frá Hólum með 7,44 í einkunn. B úrslitin í fimmgang vann Atli Guðmundsson á Júní frá Brúnum með 6,86 í einkunn og fjórganginn vann Eyrún Ýr Pálsdóttir á Blæng frá Hofsstaðaseli með þau hlutu 7,20 í einkunn.
Boðið var upp á b úrslit í tölti T3 og fjórgangi V2 í 1. flokk og töltið vann Axel Ásbergsson á Vísu frá Hjarðarholti með 6,56 í einkunn og b úrslitin í fjórgangi vann Halldór Þorbjörnsson á Litrík frá Miðengi með einkunnina 6,73.
Þau hafa því öll áunnið sér rétt í að keppa í a úrslitum á morgun en HÉR er hægt að sjá dagskrá morgundagsins
Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis.is
Niðurstöður úr b úrslitum
B úrslit – Tölt T1 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Steindór Guðmundsson Hallsteinn frá Hólum 7,44
7 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Snót frá Laugardælum 7,28
8-9 Elvar Þormarsson Heilun frá Holtabrún 7,22
8-9 Hanna Rún Ingibergsdóttir Ellert frá Baldurshaga 7,22
10 Valdís Björk Guðmundsdóttir Lind frá Svignaskarði 6,94
B úrslit – Tölt T3 – 1. flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Axel Ásbergsson Vísa frá Hjarðarholti 6,56
7 Hildur Kristín Hallgrímsdóttir Ólga frá Miðhjáleigu 6,50
8 Óskar Örn Hróbjartsson Náttfari frá Kópsvatni 6,44
9-10 Ísak Andri Ármannsson Bliki frá Hvítanesi 6,11
9-10 Annie Ivarsdottir Hörður frá Arnarstöðum 6,11
B úrslit – Fjórgangur V1 – Meistaraflokkur
6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Blængur frá Hofsstaðaseli 7,20
7 Árný Oddbjörg Oddsdóttir Adam frá Reykjavík 7,13
8 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Steinar frá Stuðlum 7,10
9 Gústaf Ásgeir Hinriksson Ási frá Hásæti 7,00
10 Jóhanna Margrét Snorradóttir Útherji frá Blesastöðum 1A 6,80
B úrslit – Fjórgangur V2 – 1. flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Halldór Þorbjörnsson Litríkur frá Miðengi 6,73
7 Sigríður Pjetursdóttir Flygill frá Sólvangi 6,57
8 Vilborg Smáradóttir Gná frá Hólateigi 6,43
9 Elísa Benedikta Andrésdóttir Moli frá Ferjukoti 6,13
10 Arnhildur Halldórsdóttir Heiðrós frá Tvennu 5,37
B úrslit – Fimmgangur F1 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Atli Guðmundsson Júní frá Brúnum 6,86
7 Ólafur Ásgeirsson Hekla frá Einhamri 2 6,83
8 Sigurður Vignir Matthíasson Hljómur frá Ólafsbergi 6,79
9 Hjörvar Ágústsson Ásborg frá Kirkjubæ 6,64
10 Jóhann Kristinn Ragnarsson Vænting frá Vöðlum 6,33
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH