Þátttökuréttur á Landsmót 2022
Nú er vormótin byrjuð og því gott að minna á þátttökurétt fyrir Landsmót
Gæðingakeppni
Fjöldi skráðra félagsmanna í hverju hestamannafélagi fyrir sig segir til um þann fjölda hrossa sem öðlast þátttökurétt í gæðingakeppni á Landsmóti. Til viðbótar þeim hestum sem vinna sér þátttökurétt á Landsmóti í öllum flokkum í gegnum úrtökur hestamannafélaganna, fá efstu 6 hestar á stöðulistum sem ekki komust inn í gegnum úrtökur hjá sínum félögum, þátttökurétt á Landsmóti. Sjá nánar í lögum og reglum LH. Staða á stöðulistum er tekin að loknum úrtökum hestamannafélaganna sem haldin eru fyrir kl. 23:59 þann 19. júní 2022.
Vakin er athygli á því að hvert hestamannafélaga ber ábyrgð á skráningu sinna félagsmanna í gæðingakeppni. Hringt verður í þá sem komast inn í gegnum stöðulista.
Íþróttakeppni
Þátttökuréttur í tölti, skeiði, fjórgang, fimmgang og slaktaumatölti miðast við stöðulista ársins 2022. Staða á stöðulistum er tekin að loknum löglegum íþróttamótum sem haldin eru fyrir kl. 23:59 þann 19. júní 2022.
30 efstu einkunnir í tölti T1
20 bestu tímarnir í 100m skeiði P2
14 bestu tímarnir í 150m skeiði P3
14 bestu tímarnir í 250m skeiði P1
20 efstu einkunnir í gæðingaskeiði PP1
20 efstu einkunnir í fjórgangi V1
20 efstu einkunnir í fimmgangi F1
20 efstu einkunnir í slaktaumatölti T2
Líkt og undanfarin Landsmót verður hringt í efstu keppendur á stöðulistum. Knapar koma til með að skrá í gegnum Sportfeng og greiða þarf skráningargjöld við staðfestingu á þátttöku.
16 ára aldurstakmark (fædd 2006) er í íþróttakeppni líkt og áður.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH