Opið gæðingamót Hrings 10-12 júní

  • 3. júní 2022
  • Fréttir
Úrtaka fyrir Landsmót fyrir Funa, Grana, Hring, Létti og Þjálfa

Opna gæðingamót Hrings verður haldið dagana 10-12. júní á Hringholtsvellinum. Mótið er úrtaka fyrir Landsmót fyrir félögin Funa, Grana, Hring, Létti og Þjálfa.

Opnað hefur verið fyrir skráningar á sportfeng og keppt verður í eftirfarandi greinum:

  • A flokkur
  • B flokkur
  • Barnaflokkur
  • Unglingaflokkur
  • B flokkur ungmenna
  • Tölt T1 opinn flokkur
  • 100 metra skeið
  • 150 metra skeið
  • 250 metra skeið / með fyrirvara um að skeiðbrautin verði lögleg samkv. nýjum reglum.

A flokkur, B flokkur og tölt T1 : 4.000 kr. pr. skráning
Barnaflokkur : 500 kr. pr. skráning
Unglinga- og ungmennaflokkur : 3.000 kr. pr. skráning
Skeiðgreinar : 3.500 pr. skráning

Skráningarfrestur rennur út miðvikudaginn 8. júní og ekki er tekið við skráningum eftir þann tíma.

Frekari upplýsingar og tæknilega aðstoð veitir mótanefnd Hrings, [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link