Afmælisárshátíð og þingslitafagnaður Sleipnis
Brynja Amble Gísladóttir, Bergur Jónsson, Dagmar Öder Einarsdóttir og Haukur Baldvins hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á árinu á afmælisfögnuði Sleipnis
85 ára afmælisárshátíð Sleipnis og þingslitafagnaður fór fram um helgina. Var þeim knöpum sem þótt höfðu skara fram úr á árinu veitt verðlaun sem og heiðursfélagar heiðraðir.
Þeir heiðursfélagar sem voru heiðraðir voru þau Svala H. Steingrímsdóttir, Gunnar B Gunnarsson, Guðríður Valgeirsdóttir og Skúli Æ Steinsson en þau voru heiðruð með nýju barmmerki. Fjórir nýjir heiðursfélagar bættust í hópinn, Einar Hermundsson, Snorri Ólafsson, Gunnar M Friðþjófsson og Einar Öder Magnússon. Öll hafa þau unnið mikið starf í þágu félagsins bæði með öflugu félags- og kynningarstarfi sem og farsælum keppnisferli.
Þeir knapar sem þóttu hafa skarað fram úr á árinu voru verðlaunaðir með bikurum og öðrum viðurkenningum. En það voru þau:
Skeið 100 m Dagmar Öder Einarsdóttir á Oddu frá Halakoti með tímann á 8,04 sek.
Skeið 150 m Daníel Larsen á Dúu frá Forsæti með tímann 14.66 sek.
Skeið 250 m Bergur Jónsson á Minningu frá Ketilstöðum með tímann 23.11 sek.
Ungmennabikar Sleipnis hlaut Brynja Amble Gísladóttir hún varð í Þriðja sæti í Vetrarmótaröð Sleipnis, vann firmakeppni Sleipnis. 2 sæti í 4 gangi á opna WR á Selfossi. Einnig vann hún báðar úrtökurnar í ungmennaflokki fyrir Landsmót og ungmenna flokk Sleipnis. Á landsmótinu varð hún í fimmta sæti í ungmennaflokki.
Efsti hestur Sleipnis í A-Flokk Krókus frá Dalbæ en hann hlaut 8,71 í forkeppni og 8,96 í úrslitum sem er ein hæsta einkunn liðins árs í A-flokk á árinu. Hlaut Sleipinskjöldinn.
Ræktunarbikar Sleipnis fékk Ari Thorarenssen fyrir Krókus frá Dalbæ, Krókus hlaut fyrir byggingu 8.19 og hæfileika 8,90 þar á meðal 10 fyrir skeið. Aðaleinkunn Krókusar er því 8.60
Íþróttaknapi Sleipnis er Haukur Baldvinsson. Hann varð Íslandsmeistari í Gæðingaskeiði á Fal frá Þingeyrum með 8,17 í einkunn og reyndar 3 árið í röð sem hann hlýtur titilinn Íslandsmeistari í Gæðingaskeiði.
Knapi ársins er Olil Amble en hún átti frábært keppnisár sem byrjaði með 3 sæti í einstaklings og liðakeppni Meistaradeildarinnar 2014. Valin fagmannlegasti knapi deildarinnar og sigraði Gæðingafimina með hæstu einkunn frá upphafi. Annað sæti í tölti á opna WR mótinu á Selfossi. Varð Suðurlandsmeistari í meistaraflokk og opinn flokk í 4 gangi á opna WR mótinu á Gaddstaðaflötum. Einnig sýndi hún 13 kynbótasýningar á árinu, aðaleinkunn 8,17. Sat hryssuna Álfastjörnu frá Syðri Gegnishólum til 7 sætis í fjögurra vetra flokki á Landsmótinu og efstu hryssuna í 6 vetra flokki á Landsmótinu, Álfhildi frá Syðri Gegnishólum, sem m.a hlaut 10,0 fyrir tölt og vilja og 9,5 fyrir hægt tölt og fegurð í reið.
Einnig voru Olil og Bergur heiðruð sérstaklega fyrir þann ótrúlega árangur sem þau hafa náð á sviði ræktunar, Þ.a.m. að vera valin ræktunarbú ársins auk fjölda annarra tilnefninga til þeirra verðlauna.
Heiðursfélagar eru, talið frá vinstri; Svala H. Steingrímsdóttir heiðruð 2009 ,Gunnar B Gunnarsson heiðraður 2009, Guðríður Valgeirsdóttir heiðruð 2009, Skúli Ævarr Steinsson heiðraður 1999, Einar Hermundsson heiðraður 2014, Snorri Ólafsson heiðraður 2014, Gunnar M Friðþjófsson heiðraður 2014, Einar Öder Magnússon heiðraður 2014.
Kjartan Ólafsson stjórnarmaður og fyrrverandi formaður afhenti barmmerkin. Magnús Ólason formaður Sleipnis
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH