Hannibal efstur á sýningunni

  • 3. júní 2022
  • Fréttir
Kynbótasýningin á Hólum 1. - 3. júní

Þá er kynbótasýningunni á Hólum lokið en yfirlitinu lauk nú fyrr í dag. Alls voru 63 hross sýnd á sýningunni og þar af hlutu 58 fullnaðardóm. Af þessum 58 hrossum hlutu 39 fyrstu verðlaun.

Dómarar á sýningunni voru þau Þorvaldur Kristjánsson, Heiðrún Sigurðardóttir og Friðrik Már Sigurðsson.

Hannibal frá Þúfum hækkaði einkunn sína fyrir fegurð í reið og hægt stökk úr 9,0 í 9,5 sem gerir 8,68 í aðaleinkunn. Hann er því þriðji hæst dæmdi klárhestur heims á eftir þeim Arthúri frá Baldurshaga (8,69) og Kveik frá Stangarlæk (8,76). Hannibal var hæst dæmdi hestur sýningarinnar en hann var sýndur af ræktanda og eiganda sínum, Mette Mannseth.

Efsta hryssa sýningarinnar er Gjöf frá Hofi á Höfðaströnd en hún hlaut 8,60 í aðaleinkunn. Fyrir sköpulag hlaut hún 8,07 og fyrir hæfileika 8,88 sem er hæsta hæfileikaeinkunn sýningarinnar. Gjöf var sýnd af Þórarni Eymundssyni.

Sindri frá Lækjamóti er fallegasti hestur sýningarinnar með 8,82 fyrir sköpulag en Sindri var sýndur af Ísólfi Líndal Þórissyni. Sindri hlaut fyrir hæfileika 8,35 og í aðaleinkunn 8,52.

Sindri frá Lækjamóti undan Ský frá Skálakoti og Rödd frá Lækjamóti, 6 vetra. Sýnandi Ísólfur Líndal Þórisson. Mynd: Lækjamót

 

Agnar Þór Magnússon hækkaði tvo fjögurra vetra fola í dag einn af þeim var Valíant frá Garðshorni á Þelamörk sem stendur nú efstur fjögurra vetra fola en fyrir yfirlit var hann með 7,91 fyrir hæfileika en eftir yfirlitið 8,31 fyrir hæfileika, fyrir sköpulag hlaut hann 8,61 sem gerir 8,42 í aðaleinkunn. Hann hækkaði fyrir tölt, skeið, fegurð í reið og fet.

Hrossin á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn

Hross á þessu móti S. H. Ae. Sýnandi
IS2015158162 Hannibal frá Þúfum 8.66 8.69 8.68 Mette Camilla Moe Mannseth
IS2013258150 Gjöf frá Hofi á Höfðaströnd 8.07 8.88 8.6 Þórarinn Eymundsson
IS2016155119 Sindri frá Lækjamóti II 8.82 8.35 8.52 Ísólfur Líndal Þórisson
IS2016201166 Þenja frá Prestsbæ 8.67 8.35 8.46 Þórarinn Eymundsson
IS2015265395 Hreyfing frá Akureyri 8.26 8.56 8.46 Þórarinn Eymundsson
IS2016258151 Grá frá Hofi á Höfðaströnd 8.39 8.47 8.44 Þórarinn Eymundsson
IS2017156296 Drangur frá Steinnesi 8.73 8.28 8.44 Tryggvi Björnsson
IS2018164069 Valíant frá Garðshorni á Þelamörk 8.61 8.31 8.42 Agnar Þór Magnússon
IS2016265073 Tara frá Jarðbrú 8.29 8.48 8.41 Barbara Wenzl
IS2018158125 Ambassador frá Bræðraá 8.28 8.45 8.39 Tryggvi Björnsson
IS2017255120 Nál frá Lækjamóti II 8.28 8.42 8.37 Ísólfur Líndal Þórisson
IS2018101038 Agnar frá Margrétarhofi 8.46 8.32 8.37 Agnar Þór Magnússon
IS2017164067 Ómar frá Garðshorni á Þelamörk 8.44 8.33 8.37 Agnar Þór Magnússon
IS2018264067 Vala frá Garðshorni á Þelamörk 8.48 8.31 8.37 Agnar Þór Magnússon
IS2014265004 Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku 8.67 8.2 8.37 Vignir Sigurðsson
IS2016257591 Dís frá Ytra-Vallholti 8.02 8.5 8.33 Bjarni Jónasson
IS2018255106 Þrá frá Lækjamóti 8.48 8.25 8.33 Þórarinn Eymundsson
IS2018165656 Muninn frá Litla-Garði 8.52 8.22 8.33 Barbara Wenzl
IS2015156958 Kristall frá Skagaströnd 8.09 8.45 8.32 Þórarinn Eymundsson
IS2018156285 Kaspar frá Steinnesi 8.24 8.35 8.31 Agnar Þór Magnússon
IS2014257354 Lokbrá frá Hafsteinsstöðum 8.29 8.26 8.27 Skapti Steinbjörnsson
IS2014155055 Áfangi frá Víðidalstungu II 8.11 8.32 8.25 Hörður Óli Sæmundarson
IS2015258251 Orka frá Sleitustöðum 8.11 8.32 8.25 Gísli Gíslason
IS2017165501 Tappi frá Höskuldsstöðum 8.39 8.15 8.24 Tryggvi Björnsson
IS2016256106 Snör frá Hofi 8.07 8.3 8.22 Þórarinn Eymundsson
IS2016257962 Túndra frá Daufá 8.11 8.25 8.2 Þórarinn Eymundsson
IS2016264068 Sif frá Garðshorni á Þelamörk 8.25 8.15 8.19 Agnar Þór Magnússon
IS2015255054 Snilld frá Efri-Fitjum 8.3 8.07 8.15 Tryggvi Björnsson
IS2017158162 Pistill frá Þúfum 8.57 7.87 8.12 Mette Camilla Moe Mannseth
IS2016276019 Þöll frá Strönd 7.97 8.12 8.07 Tryggvi Björnsson
IS2016255574 Rauðhetta frá Bessastöðum 8.06 8.05 8.06 Jóhann Birgir Magnússon
IS2015165004 Stillir frá Litlu-Brekku 8.14 7.99 8.04 Vignir Sigurðsson
IS2017265004 Stjörnusól frá Litlu-Brekku 8.27 7.89 8.03 Vignir Sigurðsson
IS2016257342 Lukka frá Hafsteinsstöðum 8.36 7.83 8.02 Þórarinn Eymundsson
IS2017258308 Rjúpa frá Hólum 7.77 8.15 8.02 Barbara Wenzl
IS2015257688 Óskhyggja frá Íbishóli 8.16 7.93 8.01 Guðmar Freyr Magnússon
IS2017125614 Agnar frá Kópavogi 8.19 7.91 8.01 Skapti Ragnar Skaptason
IS2017258309 Fjöl frá Hólum 7.96 8.02 8 Barbara Wenzl
IS2017157684 Gljásteinn frá Íbishóli 8.03 7.98 8 Agnar Þór Magnússon
IS2015175442 Héðinn frá Stóra-Bakka 8.15 7.9 7.99 Auður Karen Auðbjörnsdóttir
IS2016156111 Víkingur frá Hofi 8.35 7.72 7.94 Hörður Óli Sæmundarson
IS2015276019 Freydís frá Strönd 7.71 8.05 7.93 Tryggvi Björnsson
IS2018158345 Kvikur frá Nautabúi 8.29 7.71 7.91 Barbara Wenzl
IS2018264070 Fjóla frá Garðshorni á Þelamörk 8.5 7.57 7.9 Agnar Þór Magnússon
IS2017165061 Árroði frá Laugasteini 8.16 7.69 7.86 Agnar Þór Magnússon
IS2017201561 Brá frá Hildingsbergi 7.68 7.95 7.85 Björg Ingólfsdóttir
IS2016264511 Ópera frá Sámsstöðum 8.31 7.59 7.85 Höskuldur Jónsson
IS2017164520 Orri frá Sámsstöðum 8.22 7.62 7.83 Höskuldur Jónsson
IS2017265005 Eyjasól frá Litlu-Brekku 7.93 7.7 7.78 Vignir Sigurðsson
IS2015280322 Aríel frá Skógarkoti 8.04 7.6 7.76 Daníel Gunnarsson
IS2018164512 Kappi frá Sámsstöðum 8.28 7.46 7.75 Höskuldur Jónsson
IS2018264068 Vinkona frá Garðshorni á Þelamörk 8.28 7.44 7.73 Agnar Þór Magnússon
IS2014158840 Strákur frá Miðsitju 7.57 7.8 7.72 Daníel Gunnarsson
IS2017286179 Döggin frá Eystra-Fróðholti 7.94 7.57 7.7 Jóhann Birgir Magnússon
IS2017156299 Barði frá Steinnesi 7.83 7.62 7.7 Guðmar Freyr Magnússon
IS2011255624 Hula frá Fremri-Fitjum 7.95 7.49 7.65 Marie Holzemer
IS2017158708 Rustikus frá Dýrfinnustöðum 7.96 7.47 7.64 Ingunn Ingólfsdóttir
IS2016284084 Hekla frá Eylandi 7.76 7.38 7.52 Hörður Óli Sæmundarson
IS2015255476 Eldrós frá Þóreyjarnúpi 8.12 Hörður Óli Sæmundarson
IS2018256418 Höfn frá Kagaðarhóli 8.11 Barbara Wenzl
IS2018137316 Sigursæll frá Hellnafelli 8.06 Jessie Huijbers
IS2018255179 Vonarglæta frá Syðra-Kolugili 7.79 Hörður Óli Sæmundarson
IS2016286160 Þokkadís frá Eystra-Fróðholti 7.78 Daníel Gunnarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link