Afkvæmi Þráins að skila sér í dóm
Vala frá Garðshorni á Þelamörk, knapi Agnar Þór Magnússon. Mynd: Skjáskot af Alendis.is
Fyrstu afkvæmi Þráins frá Flagbjarnarholti eru að skila sér í dóm en á vorsýningunni á Hólum sem lauk í gær voru sýndar tvær fjögurra vetra hryssur, Völu frá Garðshorni á Þelamörk og Þrá frá Lækjamóti.
Vala hlaut 8,37 í aðaleinkunn, fyrir sköpulag hlaut hún 8,48 og fyrir hæfileika 8,31 m.a. 9,0 fyrir skeið og samstarfsvilja. Það var Agnar Þór Magnússon sem sýndi hryssuna. Móðir Völu er Elding frá Lambanesi.
Þrá hlaut 8,33 í aðaleinkunn en það var Þórarinn Eymundsson sem sýndi hryssuna. Fyrir sköpulag hlaut hún 8,48 og fyrir hæfileika 8,25. Móðir Þráar er Rán frá Lækjamóti.

Þrá frá Lækjamóti, knapi Þórarinn Eymundsson. Mynd: Skjáskot af Alendis.is
Glæsilegir dómar á fjögurra vetra hryssum og ekki amalega byrjun hjá Þránni og verður spennandi að fylgjast með þessum hryssum sem standa efstar í flokki fjögurra vetra hryssna í ár.
IS2018264067 Vala frá Garðshorni á Þelamörk
Ræktandi: Agnar Þór Magnússon, Birna Tryggvadóttir Thorlacius
Eigandi: Sporthestar ehf., Svarthöfði-Hrossarækt ehf.
F.: IS2012181608 Þráinn frá Flagbjarnarholti
Ff.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi
Fm.: IS1997287737 Þyrla frá Ragnheiðarstöðum
M.: IS1994238714 Elding frá Lambanesi
Mf.: IS1988188539 Gimsteinn frá Bergstöðum
Mm.: IS1987238711 Sveifla frá Lambanesi
FORSKOÐUNARDÓMUR
Vorsýning Hólum í Hjaltadal, dagana 1. til 3. júní.
Mál (cm): 141 – 132 – 139 – 61 – 142 – 35 – 49 – 43 – 6,3 – 28,0 – 17,5
Hófa mál: V.fr.: 8,6 – V.a.: 7,8
Sköpulag: 9,0 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 7,0 = 8,48
Hæfileikar: 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,0 – 7,5 – 9,0 – 8,0 – 7,5 = 8,31
Hægt tölt: 8,0
Aðaleinkunn: 8,37
Hæfileikar án skeiðs: 8,18
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,29
Sýnandi: Agnar Þór Magnússon
Þjálfari: Birna Tryggvadóttir Thorlacius
IS2018255106 Þrá frá Lækjamóti
Ræktandi: Elín Rannveig Líndal, Þórir Ísólfsson
Eigandi: Elín Rannveig Líndal, Þórir Ísólfsson
F.: IS2012181608 Þráinn frá Flagbjarnarholti
Ff.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi
Fm.: IS1997287737 Þyrla frá Ragnheiðarstöðum
M.: IS2000255105 Rán frá Lækjamóti
Mf.: IS1992156455 Skorri frá Blönduósi
Mm.: IS1991255103 Toppa frá Lækjamóti
FORSKOÐUNARDÓMUR
Vorsýning Hólum í Hjaltadal, dagana 30. maí til 3. júní.
Mál (cm): 148 – 137 – 143 – 66 – 146 – 37 – 53 – 43 – 6,4 – 28,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 9,0 – V.a.: 8,7
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,5 = 8,48
Hæfileikar: 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 = 8,25
Hægt tölt: 8,0
Aðaleinkunn: 8,33
Hæfileikar án skeiðs: 8,30
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,36
Sýnandi: Þórarinn Eymundsson
Þjálfari: Marie Holzemer
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH