Hallveig ráðin í hlutastarf

  • 3. febrúar 2015
  • Fréttir
Starfsmönnum fjölgar hjá Félagi hrossabænda.

Hallveig Fróðadóttir hefur verið ráðin í hlutastarf hjá Félagi hrossabænda og er hún þegar tekin til starfa. Eins og flestir hestamenn vita þá hefur Hallveig starfað  um langt árabil hjá Bændasamtökum Íslands einkum á sviði hestatengdra  verkefna. Á  tímabili vann hún með beinum hætti fyrir Félag hrossabænda  er því öllum helstu hnútum kunnug varðandi verkefni Félags hrossabænda. 

Skrifstofa Félags hrossabænda er eins og kunnugt er í Bændahöllinni við Hagatorg og verður regluleg viðvera á henni fyrir hádegi þriðjudaga og fimmtudaga en alltaf er hægt að senda fyrirspurnir og erindi í  tölvupósti  á netfangið [email protected] . 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link