Dómar hafnir í Spretti í Kópavogi

  • 8. júní 2022
  • Fréttir

Ágústínus frá Jaðri hlaut 8,63 fyrir sköpulag

Vorsýning í Spretti í Kópavogi 7. - 9. júní

Kynbótasýning hófst í Spretti í Kópavogi í gær en dómarar á sýningunni eru þeir Eyþór Einarsson, Friðrik Már Sigurðsson og Gísli Guðjónsson.

Í gær voru sýnd 28 hross og fóru átta af þeim í fyrstu verðlaun. Efstur á sýningunni sem stendur er Ágústínus frá Jaðri en hann hlaut fyrir sköpulag 8,63, fyrir hæfileika 8,38 sem gerir 8,47 í aðaleinkunn. Það var Viðar Ingólfsson sem sýndi Ágústínus sem er 7 vetra undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Prúð frá Stóra-Hofi.

Viðar sýndi einnig efstu hryssuna, Dívu frá Kvíarhóli, Díva hlaut fyrir sköpulag 8,51, fyrir hæfileika 8,42 sem gerir í aðaleinkunn 8,46. Díva er 5 vetra undan Ský frá Skálakoti og Birtu frá Mið-Fossum

Hér er listi yfir hrossin sem hafa verið dæmd í Spretti, raðað eftir aðaleinkunn

Hross á þessu móti S. H. Ae. Sýnandi
IS2015188338 Ágústínus frá Jaðri 8.63 8.38 8.47 Viðar Ingólfsson
IS2017287546 Díva frá Kvíarhóli 8.51 8.42 8.46 Viðar Ingólfsson
IS2016286761 Hrönn frá Árbæjarhjáleigu II 8.56 8.39 8.45 Viðar Ingólfsson
IS2015157017 Magni frá Ríp 8.21 8.48 8.39 Arnar Bjarki Sigurðarson
IS2018187052 Hljómur frá Auðsholtshjáleigu 8.59 7.91 8.15 Þórdís Erla Gunnarsdóttir
IS2015281385 Heiður frá Ásbrú 8.23 8 8.08 Viðar Ingólfsson
IS2016288311 Hrafndís frá Miðfelli 5 7.86 8.18 8.07 Arnar Bjarki Sigurðarson
IS2016187642 Eldur frá Laugarbökkum 8.55 7.72 8.01 Janus Halldór Eiríksson
IS2016258444 Hrafntinna frá Enni 8.01 7.95 7.98 Viðar Ingólfsson
IS2015288501 Frú frá Torfastöðum 8.46 7.67 7.95 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2016287463 Saga frá Kambi 8.02 7.86 7.92 Viðar Ingólfsson
IS2016281562 Kolbrá frá Minni-Völlum 8.04 7.8 7.89 Konráð Valur Sveinsson
IS2015287018 Hrafney frá Auðsholtshjáleigu 7.88 7.88 7.88 Þórdís Erla Gunnarsdóttir
IS2016282646 Hátíð frá Þingási 8.07 7.78 7.88 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2016125042 Fýr frá Flekkudal 8.23 7.65 7.85 John Kristinn Sigurjónsson
IS2012256275 Hera frá Hólabaki 7.98 7.77 7.84 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2017285021 Þöll frá Geirlandi 7.99 7.71 7.81 Elvar Þormarsson
IS2014184970 Grandi frá Lynghaga 7.77 7.78 7.78 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2018187642 Tindur frá Laugarbökkum 8.25 7.48 7.75 Janus Halldór Eiríksson
IS2016235635 Kolbrá frá Grímarsstöðum 8.14 7.52 7.74 Elvar Þormarsson
IS2017282045 Bára frá Hrauni 8.04 7.55 7.73 Janus Halldór Eiríksson
IS2016287019 Vök frá Auðsholtshjáleigu 8.06 7.49 7.69 Dagbjört Skúladóttir
IS2017287515 Kempa frá Kampholti 7.96 7.5 7.66 Konráð Valur Sveinsson
IS2017187054 Hágangur frá Auðsholtshjáleigu 7.97 7.45 7.63 Dagbjört Skúladóttir
IS2016281844 Sóldís frá Heimahaga 7.91 7.48 7.63 John Kristinn Sigurjónsson
IS2015284652 Auður frá Vestra-Fíflholti 7.72 7.45 7.55 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2012281140 Gjóla frá Langholti 7.82 7.32 7.5 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2014288720 Nóta frá Ormsstöðum 7.61 7.23 7.36 Sigurður Vignir Matthíasson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link