Opið gæðingamót Léttis og Funa
Opið gæðingamót Léttis og Funa fer fram 18. – 19. júní á sama tíma fer fram úrtaka fyrir Landsmót fyrir hestamannafélögin Glæsi, Funa, Grana, Hring, Létti, Þjálfa og Þráin.
Keppnin veðrur haldin á Hlíðarholtsvelli 18. – 19. júní en opnað hefur verið fyrir skráningar á Sportfeng. Skráningarfrestur rennur út miðvikudaginn 14. júní. Ekki er tekið við skráningum eftir þann tíma. Nánari upplýsingar og aðstoð er hægt að fá á [email protected]
Keppt verður í eftirfarandi greinum
- A flokkur
- B flokkur
- B flokkur ungmenna
- Unglingaflokkur
- Barnaflokkur
- Tölt T1, opinn flokkur
- 100m. skeið
- 150m. skeið
- 250m. skeið
A flokkur, b flokkur, tölt T1: 4.000 pr. skráning
Barnaflokkur: 500 pr. skráning
Unglinga og ungmennaflokkur 3.000 pr. skráning
Skeiðgreinar 3.500 pr. skráning
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH