Íslandsmeistarinn Róbert
Verðlaunaafhending í tölti í ungmennaflokki fór fram seinna vegna beinnar útsendingar Stöðvar 2. Íslandsmeistari í tölti í ungmennaflokki er Róbert Bergmann en hann sat hryssuna Brynju frá Bakkakoti og hlutu þau 7,67 í einkunn.
Gústaf Ásgeir varð samanlagður sigurvegari í ungmennaflokki.
A-úrslit í tölti ungmennaflokki:
1 Róbert Bergmann / Brynja frá Bakkakoti 7,67
2 Hinrik Ragnar Helgason / Sýnir frá Efri-Hömrum 7,22
3 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Ás frá Skriðulandi 7,17
4-5 Anna Kristín Friðriksdóttir / Glaður frá Grund 6,89
4-5 María Gyða Pétursdóttir / Rauður frá Syðri-Löngumýri 6,89
6 Finnbogi Bjarnason / Roði frá Garði 6,67
7 Thelma Dögg Harðardóttir / Albína frá Möðrufelli 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH