Punktamót Geysis
Helgina 18.-19. júní er fyrirhugað að halda punktamót á landsmótssvæðinu að Rangárbökkum við Hellu. Er þetta hugsað sem tækifæri fyrir knapa að ná inn á stöðulista fyrir Landsmót og Íslandsmót. Stefnt er að því að hafa 100m, 150m og 250m skeið ásamt T1, T2, V1, F1 og gæðingaskeið.
Hámarksfjöldi verður á öllum greinum nema kappreiðum og er það gert til að geta haldið mótið á sem stystum tíma. Ef ein grein er vinsælli en önnur er möguleiki að færa til fjölda milli greina.
Mótið verður fellt niður ef ekki verður næg skráning.
Keppnisgreinar:
- T1 – 30 knapar
- V1 – 20 knapar
- F1 – 20 knapar
- T2 – 20 knapar
- PP1 – 20 knapar
- 100m, 150m og 250m skeið
Skráning er hafin og fer fram á sportfeng, skráningu lýkur fimmtudagskvöldið 16.júní!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH