Skagaströnd ræktunarbú ársins í A-Hún.
Uppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var haldin á laugardaginn í félagsheimilinu á Blönduósi. Þar voru knapar og ræktendur sýslunnar verðlaunaðir.
Knapi ársins 2012 hjá Hestamannafélaginu Neista er Ólafur Magnússon. Hann áttu góðu gengi að fagna á ýmsum mótum í sumar, sigraði t.a.m. töltkeppni KS deildar, var í úrslitum í tölti á Ís-landsmóti. ÁLandsmóti varð hann í 10. sæti í B-flokk og 15. sæti í tölti á Gáska frá Sveinsstöðum.
Samtök Hrossabænda í A.-Hún veittu ræktendum í félaginu viðurkenningar fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin. Eigendur eftirfarandi hrossa hlutu viðurkenningu:
Hryssur
4 vetra
Katla frá Blönduósi
F. Akkur frá Brautarholti
M. Kantata frá Sveinatungu
B: 7,96 H: 8,45 A: 8,25
Ræktendur og eigendur: Tryggvi Björnsson og Ásgeir Blöndal
Sýnandi: Tryggvi Björnsson
5 vetra
Eydís frá Hæli
F. Glymur frá Innri Skeljabrekku
M. Dáð frá Blönduósi
B: 7,99 H: 8,40 A: 8,24
Ræktandi og eigandi: Jón Kristófer Sigmarsson
Sýnandi: Gísli Gíslason
6 vetra
Kátína frá Steinnesi
F. Garpur frá Hvoli
M. Kylja frá Steinnesi
B: 7,57 H: 8,38 A: 8,06
Ræktendur og eigendur: Magnús Jósefsson og Tryggvi Björnsson
Sýnandi: Tryggvi Björnsson
7 vetra og eldri
Smáralind frá Skagaströnd
F. Smári frá Skagaströnd
M. Sól frá Litla-Kambi
B: 8,15 H: 8,46 A: 8,34
Ræktandi: Sveinn Ingi Grímsson
Eigandi: Gestüt Sunnaholt GmbH
Sýnandi: Þórarinn Eymundsson
Stóðhestar
5 vetra
Guðberg frá Skagaströnd
F. Smári frá Skagaströnd M. Þyrla frá Skagaströnd
B: 7,96 H: 8,23 A: 8,12
Ræktandi: Sveinn Ingi Grímsson
Eigandi: Eva Husbom
Sýnandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson
6 vetra
Kompás frá Skagaströnd
F. Hágangur frá Narfastöðum
M. Sunna frá Akranesi
B: 8,46 H: 8,40 A: 8,43
Ræktandi og eigandi: Sveinn Ingi Grímsson
Sýnandi: Daníel Jónsson
7 vetra og eldri
Sævar frá Hæli
F. Keilir frá Miðsitju
M. Veröld frá Blönduósi
B: 8,26 H: 8,23 A: 8,24
Ræktandi: Jón Kristófer Sigmarsson og Ólöf Birna Björnsdóttir
Eigendi: Inge Kringeland
Sýnandi: Heiðrún Ósk Eymundsdóttir
Sölufélagsbikarinn svokallaða hlaut svo hæst dæmda hryssa á héraðsýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns.
Sif frá Söguey
F. Orri frá Þúfu
M. Gefjun frá Sauðanesi
B: 8,29 H: 8,07 A: 8,16
Ræktandi: Torben Haugaard
Eigendur: Tryggvi Björnsson og Jónas Hallgrímsson
Sýnandi: Tryggvi Björnsson
Búnaðarbankabikarinn fékk hæst dæmdi stóðhestur á héraðssýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns.
Áfangi frá Sauðanesi
F. Hágangur frá Narfastöðum
M. Slæða frá Sauðanesi
B: 8,50 H: 7,75 A: 8,05
Ræktandi og eigandi: Ingibjörg Guðmundsdóttir
Sýnandi: Tryggvi Björnsson
Fengsbikarinn – bikar sem gefinn var til minningar um Guðmund Sigfússon frá Eiríksstöðum og veittur er hæst dæmda kynbótahrossi í eigu heimamanns, fór til Sveinn Inga Grímssonar og Líneyjar Jósefsdóttur, eigenda Kompás frá Skagaströnd en þau voru jafnframt heiðruð fyrir ræktunarbú ársins.
Fimm hross úr þeirra ræktun voru sýnd í kynbótadómi á árinu, þau: Sunna með aðaleinkunn 8,02, Guðberg með aðaleinkunn 8,12, Kompás með aðaleinkunn 8,43, Smáralind með aðaleinkunn 8.34 og Kostur með aðaleinkunn 7,95. Kvistur fór í úrtöku fyrir Landsmót hjá Herði og fékk þar í aðaleinkunn 8,91 en í A-flokki á Landsmóti fékk hann aðaleinkunina 8,56.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH