Hæsta hryssan á hæð á herðakamb

Drottning frá Borgarnesi mældist 154 cm. á hæð á herðarkamb Mynd: @hrefnamaria
Kynbótaárið 2022 stefnir í að verða mikið metaár en nú þegar hefur heimsmet í hæð á herðakamb verið slegið og heimsmetið sem hæst dæmda íslenska hrossið.
Hin fimm vetra Drottning frá Borgarnesi var mæld í gær á vorsýningu í Hafnarfirði 154 cm. á herðakamb og sló þá heimsmet en hún er eina íslenska hryssan sem hefur mælst svo há á herðakamb í kynbótadómi með stangarmáli. Ein hryssa er mæld hærri en hún en það er hún Kengála frá Gerðum sem var mæld ári 1988 á Fjórðungsmóti 157 cm. á herðakamb en það var bandmál.
Drottning er undan Herkúlesi frá Ragnheiðarstöðum og Bylgju frá Borgarnesi. Bæði voru þau Herkúles og Bylgja mæld 145 cm. á herðar í kynbótadómi. Drottning var einungis sýnd í byggingardómi þar sem hún hlaut 8,40 fyrir sköpulag. 9,0 fyrir samræmi og 8,5 fyrir háls, herðar og bóga, bak og lend og fótagerð.
Sköpulagsdómur Drottningar

Hrefna María Ómarsdóttir sýndi hryssuna en á Instagram reikningi sínum hefur hún birt myndir og myndbönd af hryssunni þar sem sést hversu stór hún virkilega er.
View this post on Instagram