Úrslit frá vetrarmóti Neista
Um helgina voru haldnir Vetrarleikar Hestamannafélagsins Neista á Svínavatni í einmuna blíðu.
Þar fór mikinn Magnús Jósefsson stórbóndi í Steinnesi sem kom sá og sigraði áhugamannaflokk á hryssu sinni Vordísi frá Steinnesi. Magnús er þekktur fyrir margt annað en að vera þátttakandi í keppnum en nú verður kannski breyting á!
Úrslit urðu þessi:
Börn:
1. Sigurður Bjarni Aadnegard og Þokki frá Blönduós
2. Ásdís Freyja Grímsdóttir og Djákni frá Bakka
3. Lilja María Suska og Neisti frá Bolungarvík
4. Ásdís Brynja Jónsdóttir og Ör frá Hvammi
5. Sólrún Tinna Grímsdóttir og Gjá frá Hæli
6. Lara Margrét Jónsdóttir og Örvar frá Steinnesi
Unglingar:
1. Aron Orri Tryggvason og Harpa frá Skagströnd
2. Haukur Marian Suska og Tinna frá Hvammi 2
3. Hanna Ægisdóttir og Móði frá Stekkjardal
4. Hákon Ari Grímsson og Hnakkur frá Reykjum
Áhugamannaflokkur:
1. Magnús Jósefsson og Vordís frá Steinnesi
2. Höskuldur B Erlingsson og Börkur frá Akurgerði
3. Jóhanna Stella Jóhannsdóttir og Gleði frá Sveinsstöðum
4. Þórólfur Óli Aadnegard og Miriam frá Kommu
5. Elín Hulda Harðardóttir og Gleypnir frá Steinnesi
Opinn flokkur:
1. Guðmundur Þór Elíasson og Fáni frá Lækjardal
2. Pétur Sæmundsson og Prímus frá Brekkukoti
3. Víðir Kristjánsson og Börkur frá Brekkukoti
4. Ægir Sigurgeirsson og Gítar frá Stekkjardal
5. Tryggvi Björnsson og Rammur frá Höfðabakka
6. Egill Þórir Bjarnason og Sýn frá Gauksstöðum
Bæjakeppni:
1. Tryggvi Björnsson og Kátína frá Steinnesi, keppti fyrir Steinnes
2. Eline Schrijver og Eyvör frá Eyri, keppti fyrir Stóradal
3. Selma Svavarsdóttir og Hátíð frá Blönduósi, keppti fyrir Hnjúkahlíð
4. Víðir Kristjánsson og Háleggur frá Stóradal, keppti fyrir Köldukinn
5. Hjörtur Karl Einarsson og Syrpa frá Hnjúkahlíð, keppti fyrir Sveinsstaði
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH