Ráðstefna um dómaramál á morgun
Minnt er á ráðstefnu um dómaramál sem haldin verður á morgun, þriðjudaginn 6. desember, í félagsheimili Fáks og hefst kl. 19 – 22.
Búast má við fjölbreyttum framsöguerindum en flutningsmenn verða í þessari röð:
1. Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur
2. Pjetur Pjetursson, stjórnarmaður og formaður fræðslunefndar í HÍDÍ
3. Sigurbjörn Bárðarson, formaður fræðslunefndar GDLH
4. Olil Amble, keppnisknapi
5. Lárus Ástmar Hannesson formaður GDLH
Að loknum framsöguerindum verða umræður. Umsjón með ráðstefnunni hefur Landbúnaðarháskóli Íslands.
Vonast skipuleggjendur ráðstefnunar eftir að sjá sem flesta áhugasama um keppni og dómaramál.
Þessu tengt: Námskeið um dómgæslu væntanlegt
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH