Landsmót 2024 Ríkjandi Íslandsmeistarinn efstur

  • 6. júlí 2022
  • Fréttir

Jakob og Kopar Mynd: Skjáskot af Alendis.is

Niðurstöður og myndband frá forkeppni í slaktaumatölti á Landsmóti

Veðrið hefur verið frekar millt á Gaddstaðaflötum í dag en byrjað er að rigna og hefur heldur bætt í rigninguna eftir því sem líður á kvöldið. Keppt er í íþróttagreinum í kvöld, fyrst slaktaumatölti og síðan fjórgangi.

Slaktaumatöltið fór vel fram. Það voru ekki eins margir í brekkunni og þegar milliriðlar A flokks fóru fram en þar gæti veðrið spilað inn í.

Jakob Svavar Sigurðsson stendur efstur eftir forkeppni á Kopari frá Fákshólum en þeir hlutu 8,03 í einkunn. Jakob og Kopar eru ríkjandi Íslandsmeistarar í greininni og ætla sér eflaust að vera þeir fyrstu til að sigra greinina á Landsmóti. Sitt sýnist hverjum um það að bætta var við nokkrum íþróttagreinunum á mótin en fróðlegt verður að sjá að móti loknu hvað fólk segir.

Ásmundur Ernir Snorrason á Hlökk frá Strandarhöfði er annar eftir forkeppni með 7,97 í einkunn og Hinrik Bragason á Kveik frá Hrísdal og Viðar Ingólfsson á Eldi frá Mið-fossum deila þriðja sætinu með 7,70 í einkunn.

Hér fyrir neðan er myndband frá Alendis.is af efstu þremur eftir forkeppnina og niðurstöður

Tölt T2 – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn

1 Jakob Svavar Sigurðsson Kopar frá Fákshólum Grár/rauðureinlitt Dreyri 8,03
2 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Brúnn/mó-einlitt Geysir 7,97
3-4 Hinrik Bragason Kveikur frá Hrísdal Brúnn/milli-einlitt Fákur 7,70
3-4 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum Bleikur/álóttureinlitt Fákur 7,70
5 Teitur Árnason Njörður frá Feti Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Fákur 7,67
6 Mette Mannseth Blundur frá Þúfum Jarpur/dökk-einlitt Skagfirðingur 7,63
7-8 Védís Huld Sigurðardóttir Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Brúnn/milli-einlitt Sleipnir 7,53
7-8 Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi Rauður/milli-einlitt Þytur 7,53
9-10 Ólöf Helga Hilmarsdóttir Katla frá Mörk Jarpur/milli-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka Fákur 7,47
9-10 Reynir Örn Pálmason Týr frá Jarðbrú Brúnn/milli-einlitt Hörður 7,47
11 Egill Már Þórsson Hryggur frá Hryggstekk Rauður/milli-blesa auk leista eða sokkavagl í auga Léttir 7,37
12 Ólafur Andri Guðmundsson Askja frá Garðabæ Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Geysir 7,23
13-14 Eyrún Ýr Pálsdóttir Doðrantur frá Vakurstöðum Bleikur/fífil-einlitt Skagfirðingur 6,97
13-14 Guðmar Þór Pétursson Vildís frá Múla Brúnn/milli-einlitt Borgfirðingur 6,97
15 Anna María Bjarnadóttir Birkir frá Fjalli Bleikur/álótturstjörnótt Geysir 6,93
16-17 Kristófer Darri Sigurðsson Ófeigur frá Þingnesi Bleikur/fífil-einlitt Sprettur 6,87
16-17 Vilfríður Sæþórsdóttir List frá Múla Rauður/milli-einlitt Fákur 6,87
18 Matthías Leó Matthíasson Kolka frá Leirubakka Brúnn/milli-einlitt Jökull 6,83
19 Jóhann Kristinn Ragnarsson Kvarði frá Pulu Jarpur/dökk-einlitt Sprettur 6,47
20 Hjörvar Ágústsson Fróði frá Brautarholti Rauður/milli-tvístjörnótt Geysir 5,37

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link