Landsmót 2024 Kynbóta- og keppnisfeður Landsmótsins

  • 7. júlí 2022
  • Fréttir

Álfamær frá Prestsbæ undan Spuna frá Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ, knapi Árni Björn Pálsson. Mynd: Óðinn Örn

Hvaða stóðhestar eiga flest afkvæmi á mótinu

Nú þegar Landsmótið er langt á veg komið er gaman að skoða hvaða hestar eiga flest afkvæmi á mótinu.

Spuni frá Vesturkoti á flest afkvæmi á mótinu eða 23 talsins. Í keppni eru 15 hross undan honum en engin annar stóðhestur á svo mörg afkvæmi af keppnishrossunum og 8 kynbótahross eru undan honum.

Skýr frá Skálakoti á næst flest afkvæmi á mótinu eða 21 talsins. Í keppni eru 6 hross undan honum og 15 kynbótahross en enginn annar stóðhestur á svo mörg afkvæmi af kynbótahrossunum.

Þriðji er Stáli frá Kjarri með 14 afkvæmi í keppni og 3 kynbótahross.

 

Stóðhestar og fjöldi afkvæma á Landsmóti

Hestur Fjöldi afkv. í keppni Fjöldi afkv. í kynbótadóm Samanlagður fjöldi
Spuni frá Vesturkoti 15 8 23
Skýr frá Skálakoti 6 15 21
Stáli frá Kjarri 14 3 17
Arður frá Brautarholti 13 3 16
Loki frá Selfossi 13 2 15
Trymbill frá Stóra-Ási 10 5 15
Hrannar frá Flugumýri II 8 7 15
Ómur frá Kvistum 11 3 14
Konsert frá Hofi 3 8 11
Ölnir frá Akranesi 3 8 11
Álfur frá Selfossi 10 10

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link