Sigurbjörn sópaði að sér verðlaununum
Uppskeruhátíð hestamanna fór fram á Broadway í kvöld. Mikill fjöldi gesta var saman kominn og gæddi sér á dýrindis þriggja rétta máltíð og milli rétta voru veitt verðlaun.
Fyrstu verðlaun kvöldsins voru heiðursviðurkenning LH og komu þau í hlut Sveins Guðmundssonar stórræktanda á Sauðárkróki. Hann er hugsjónamaður mikill í íslenskri hrossarækt, eins og flestir vita og hefur um áratugaskeið ræktað hross kennd við Sauðárkrók. Hann er enn að, nú í samstarfi við Guðmund son sinn. Sveinn hefur hlotið Sleipnisbikarinn þrisvar sinnum, sem er einstakur árangur í íslenskri hrossarækt. Það má því með sanni segja að Sveinn sé einstaklega vel að þessum heiðri komin.
Þá var komið að kynbótaknapa ársins. Það var Bjarni Jónasson á Sauðárkróki sem varð fyrir valinu í ár og sýndi hann mörg hross á árinu og var meðaleinkunn hæfileika þeirra 8.40, glæsilegur árangur það. Það var Eyþór bróðir hans sem veitti verðlaunum hans viðtöku, en Bjarni er staddur erlendis.
Næst voru veitt verðlaun þeim ræktanda keppnishrossa sem talinn er hafa skarað fram úr á árinu, og eru þessi verðlaun veitt í fyrsta sinn og því alveg ný af nálinni. Það hefur löngum verið talað um það að Orri frá Þúfu gefi keppnishross í röðum og því til stuðnings hlaut Indriði Th. Ólafsson þessi verðlaun.
Þá var komið að efnilegasta knapa ársins. Það var Hekla Katharína Kristinsdóttir sem varð fyrir valinu. Hún var m.a. tvöfaldur Íslandsmeistari í sumar, í fjórgangi og tölti ungmenna og er frábær fyrirmynd þeirra sem yngri eru bæði innan vallar sem utan.
Gæðingaknapi ársins er Sigursteinn Sumarliðason. Hann var framarlega í þeim gæðingakeppnum sem haldnar voru í sumar með Álm frá Skjálg í A-flokki, Ölfu frá Blesastöðum, Geisla frá Svanavatni og Nemó frá Hlemmiskeiði 2 í B-flokki.
En Sigurbjörn Bárðarson rakaði saman verðlaununum í kvöld. Hann var kjörinn íþróttaknapi ársins, skeiðknapi ársins og að lokum knapi ársins. Sigurbjörn náði frábærum árangri á mótum í sumar og var tilnefndur í fjórum flokkum knapaverðlaunanna í ár. Sigurbjörn slær aldeilis ekki slöku við og segist rétt vera að byrja! Hann sigraði A-flokkinn á Meistaramóti Andvara í haust á gæðingnum Stakk frá Halldórsstöðum, setti Íslandsmet í 150m skeiði með rafrænni tímatöku á Óðni frá Búðardal, sigraði Meistaradeild VÍS annað árið í röð, svo eitthvað sé nefnt. Sigurbjörn er einn fremsti íþróttamaður landsins og er vel að titlunum kominn.
Eiðfaxi óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju með frábæran árangur á árinu.
Þegar þetta er skrifað dunar dansinn enn á Broadway og hestamenn ennþá í fullu fjöri, uppábúnir og huggulegir!
-HKG
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH