„Vil fá einhverja skýringu“, segir Páll
Stórbóndinn á Flugumýri, Páll Bjarki Pálsson er í bæjarferð og eins og hrossabænda er háttur,…
leit hann við á skrifstofu Eiðfaxa. Páll lét vel af sér og sínu, sagði folöld þó hafa verið veik en þau væru að hressast. „Ég tek folöldin ekki undan mæðrum sínum, tel það ekki góðan kost“ sagði Palli.
„Ég sem dreifbýlismaður er mjög ósáttur við þá ákvörðun Félags hrossabænda að slíta samstarfi við LH varðandi uppskeruhátíð. Ég myndi gjarnan vilja fá einhverja skýringu á þvi hversvegna sú ákvörðun var tekin. Það er illskiljanlegt hversvegna menn geta ekki glaðst saman, átt þennan hátíðardag í sameiningu. Nú þurfa þeir sem vilja vera viðstaddir að fara tvær ferðir suður í stað einnar, bara útaf fílukasti einhverra“ sagði Páll er hann kvaddi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH