Tilþrif í barnaflokkinum

  • 8. júlí 2022
  • Fréttir
Niðurstöður úr b úrslitum í barnaflokki

Það voru mikil tilþrif í barnaflokkinum en mörgum finnst þetta einn skemmtilegasti flokkurinn að horfa á á Landsmótum. Það var mjótt á munum á efstu hestum en einungis skildu 0,01 að áttunda og níunda sæti.

Það fór svo að Hákon Þór Kristinsson á Magna frá Kaldbak nældi sér í sæti í a úrslitum á morgun með 8,71 í einkunn en í níunda sæti varð Elsa Kristín Grétarsdóttir á Tvisti frá Efra-Seli með 8,70 í einkunn. Tíunda er Eyvör Vaka Guðmundsdóttir á Bragabót frá Bakkakoti með 8,61 í einkunn

B úrslit – Barnaflokkur – Niðurstöður
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn

8 Hákon Þór Kristinsson Magni frá Kaldbak Geysir 8,71
9 Elsa Kristín Grétarsdóttir Tvistur frá Efra-Seli Sleipnir 8,70
10 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir Bragabót frá Bakkakoti Geysir 8,61
11 Guðrún Elín Egilsdóttir Rökkvi frá Miðhúsum Léttir 8,46
12 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Djörfung frá Miðkoti Geysir 8,43
13 Róbert Darri Edwardsson Ósk frá Brún Geysir 8,29
14 Hjördís Halla Þórarinsdóttir Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi Skagfirðingur 7,85
15 Hrefna Kristín Ómarsdóttir Tindur frá Álfhólum Fákur 7,29

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link