Skráningarfrestur framlengdur
Mótanefnd Dreyra hefur framlengt skráningarfrestinum þangað til í kvöld til kl. 22:00
Áhugamannamót Íslands verður haldið dagana 15.-17. júli að félagssvæðinu Æðarodda á Akranesi. Keppt verður í eftirfarandi greinum Tölt T3, Tölt T4, Tölt T7, Fjórgangur V2, V5, Fimmgangur F2, gæðingaskeið og 100 m Flugskeið. Allir þeir knapar sem hafa náð 22 ára aldri á árinu og eldri og hafa ekki keppt í meistaraflokki á síðastliðnum 2 árum hafa þátttökurétt á mótinu.
Skráningarfresturinn er frá og með 26. júni og lýkur miðvikudaginn þann 13. júli kl.00:00
Skráningargjaldið er 7.000 kr fyrir hringvallargreinar en 5.000 kr fyrir skeiðgreinar og fer skráningin fram í gegnum sportfengur.com
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH