Adrían frá Garðshorni á Þelamörk, tekur á móti hryssum að Efri-Rauðalæk við Hellu

  • 15. júlí 2022
  • Fréttir

Gæðingurinn fasmikli og geðprúði, Adrían frá Garðshorni á Þelamörk, tekur á móti hryssum að Efri-Rauðalæk við Hellu.

Nánari upplýsingar veitir Eva Dyröy í síma 898-1029 eða [email protected] en óskað er eftir að hryssur séu skráðar undir hestinn á www.fyljun.com

 

Adrían er að fara vel af stað hvað afkvæmi varðar en fyrstu afkvæmi hans fæddust 2018 og skiluðu tvö þeirra sér til fullnaðardóms á vorsýningum. Bæði fóru í góð 1. verðlaun – dómarnir mjög athyglisiverðir og lofandi.  Þetta voru þau Fjóla frá Garðshorni á Þelamörk (sköpulag 8,50, hæfileikar 8,08, aðaleinkunn 8,23) og glæsihesturinn Valíant frá Garðshorni á Þelamörk (sköpulag 8,61, hæfileikar 8,31, aðaleinkunn 8,31), sem kynntu sig einnig vel á Landsmótinu og varð Valíant þar raunar hæstur 4ra vetra stóðhesta.  Frábærir dómar fyrir 4ra vetra tryppi og ríma vel við þær lýsingar sem heyrst hafa á yngri afkvæmum Adríans, en þau virðast heilt yfir eiga það sameiginlegt að vera yfirveguð, djörf, framfalleg, lofthá og fara gjarnan um á fallegu tölti – reist og hágeng.

 

Að Adrían standa afar sterkar ættir en hann er undan 1. verðlauna- og heiðursverðlaunahrossunum Hágangi frá Narfastöðum (sammæðra Stormi frá Herríðarhóli) og Eldingu frá Lambanesi sem gefið hefur 10 afkvæmi sem hlotið hafa 1. verðlaun, þar á meðal Hersir frá Lambanesi og Vala frá Garðshorni á Þelamörk sem stóð efst 4ra vetra hryssna á nýafstöðnu Landsmóti á Hellu.

 

Af fleiri þáttum sem kunna að vera athyglisverðir fyrir ræktendur má nefna:

 

  • Bráðþroska andlega og líkamlega, kom snemma til og hefur alltaf tekið tamningu og þjálfun vel
  • Úrvals geðslag, hestinum hefur verið riðið af börnum yngri en 10 ára í hesthúsahverfi
  • Kynbótadómur, 4ra vetra:
    Sköpulag 8,41, hæfileikar 8,43, aðaleinkunn 8,42.

    • 4 x 9, þ.e. fyrir tölt, vilja/geðslag, fegurð í reið og bak/lend
    • Fyrir háls/herðar/bóga hlaut hann 8,5 með umsögninni
      „Reistur – Skásettir bógar – Háar herðar“
  • Kynbótadómur, 5 vetra:
    Sköpulag 8,63, hæfileikar 8,63, aðaleinkunn 8,63.

    • 9,5 fyrir tölt
    • 4 x 9, þ.e. fyrir vilja/geðslag, háls/herðar/bóga, bak/lend, samræmi og hófa
    • Stóð efstur 5 vetera stóðhesta á Landsmótinu 2018
  • Sýndur skeiðlaus í kynbótadómi 6 vetra þar sem hann hlaut:
    • 4 x 9,5, þ.e. fyrir tölt, vilja/geðslag, fegurð í reið og hófa
    • 3 x 9, þ.e. háls/herðar/bóga, bak/lend og samræmi)
  • Keppnisárangur
    • 7 vetra, Tölt T1, einkunn: 7,17 (Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla)
    • 7 vetra, B-flokkur, einkunn: 8,89 (Gæðingamót Sörla)
    • 8 vetra, B-flokkur, einkunn: 8,99 (Fjórðungsmót Vesturlands 2021)
    • 9 vetra, A úrslit B-flokks gæðinga á LM 2022, einkunn 8,66

 

Fyrir áhugasama má benda á Facebook síðu Adríans, www.facebook.com/AdrianStallion/

Valíant frá Garðshorni á Þelamörk

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link