Opna gæðingamótið á Flúðum

  • 17. júlí 2022
  • Fréttir
Skráning hafin á mótið í gegnum Sportfeng

Opna gæðingamótið á Flúðum verður haldið dagana 21. – 24.júlí næstkomandi. Mótið verður með hefðbundnu sniði og boðið verður uppá eftirfarandi flokka: A-flokkur, A-flokkur áhugamanna, A-flokkur ungmenna, B-flokkur, B-flokkur áhugamanna, B-flokkur ungmenna, unglingaflokkur, barnaflokkur Tölt T3 – 18 ára og eldri, tölt T3 – 17 ára og yngri, tölt T7 börn og 100m skeið.

Það er til mikils að vinna þar sem peningaverðlaun verða fyrir fyrsta sæti í 6 flokkum eins og síðustu ár!

  • 100.000 kr – A flokkur
  • 100.000 kr – B flokkur
  • 100.000 kr – A flokkur áhugamanna
  • 100.000 kr – B flokkur áhugamanna
  • 100.000 kr – T3 tölt 18 ára og eldri
  • 100.000 kr – 100m skeið

Skráningagjöld: eldri flokkar og skeið 6.500kr og yngri flokkar 4.500kr. Skráning fer fram inná sportfeng. Skráning hefst 13.júlí og lýkur á miðnætti 18.júlí.

Gæðingamótsnefnd áskilur sér þann rétt að fella niður flokka ef ekki er næg þáttaka. Nefndin hvetur alla til að taka þátt og eiga skemmtilegt gæðingamót saman!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link