Skráningarfrestur framlengdur á Gæðingamótinu á Flúðum
Nú er orðið ljóst að stórt mót verður um helgina á Flúðum hjá Hestamannafélaginu Jökli. Ákveðið var í gær (mánudag) að reyna að taka tillit til þeirra knapa sem eru að keppa á Íslandsmóti og færa þá til í rásröð eftir þörfum eða endurgreiða að fullu ef annað gengur ekki. Það var því ákveðið að lengja skráningarfrestinn um einn dag og líkur skráningu á miðnætti í kvöld.
Gaman er að geta þess að 20% afsláttur verður á tjaldsvæðinu á Flúðum og er dagskráin að taka á sig skemmtilega mynd.
Að loknu skeiði og úrslitum í tölti á laugardagskvöldið verður trúbador að spila í reiðhöllinni þar sem árangur dagsins verður gerður upp.
Ekki má gleyma aðalatriðinu, pollarnir fá að sjálfsögðu sinn glugga. Þeir verða í hádeginu á sunnudaginn og verður skráning á staðnum.
Sjáumst hress á Gæðingamótinu á Flúðum
Kveðja, mótanefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH