Myndbrot frá töltveislunni í dag
Forkeppni í tölti fór fram í dag á Íslandsmótinu. Efstur eftir forkeppni í meistaraflokki er Árni Björn Pálsson á Ljúfi frá Torfunesi en þeir eru ríkjandi Íslandsmeistarar í greininni og nýkrýndir Landsmótssigurvegarar í tölti. Efst í ungmennaflokki er Glódís Rún Sigurðardóttir á Drumb frá Víðivöllum fremri
Hér fyrir neðan eru tvö myndbönd frá Alendis.is þar sem hægt að er að horfa á efstu þrjú pörin í hvorum flokki fyrir sig.
Meistaraflokkur – Forkeppni – Niðurstöður
1 Árni Björn Pálsson / Ljúfur frá Torfunesi 8,93
2 Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Melabergi 8,60
3 Helga Una Björnsdóttir / Fluga frá Hrafnagili 8,50
Ungmennaflokkur – Forkeppni – Niðurstöður
1 Glódís Rún Sigurðardóttir / Drumbur frá Víðivöllum fremri 8,00
2 Benedikt Ólafsson / Biskup frá Ólafshaga 7,43
3 Arnar Máni Sigurjónsson / Sigð frá Syðri-Gegnishólum 7,03
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH