Íslandsmót Jóhanna, Haukur, Signý og Kristófer samanlagðir sigurvegarar

  • 24. júlí 2022
  • Fréttir
Íslandsmeistarar í samanlögðum fjórgangs- og fimmgangsgreinum

Þá er Íslandsmótinu að ljúka og í dag voru verðlaunaðir samanlagði sigurvegarar. Í fjórgangsgreinum voru það systurnar Jóhanna Margrét og Signý Sól Snorradætur sem hrepptu titlana. Jóhanna í meistaraflokki á Bárði frá Melabergi og Signý Sól í ungmennaflokki á Kolbeini frá Horni I.

Í fimmgangsgreinum var það Haukur Baldvinsson á Sölva frá Stuðlum sem hreppti titilinn en þeir urðu einnig Íslandsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum í fyrra. Í ungmennaflokki var það Kristófer Darri Sigurðsson sem stóð efstur á Ás frá Kirkjubæ.

 

Meistaraflokkur

Fjórgangssigurvegari: Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Melabergi
Tölt T1 8,60
Fjórgangur V1 7,63

Fimmgangssigurvegari: Haukur Baldvinsson / Sölvi frá Stuðlum
Tölt T1 6,33
Fimmgangur F1 6,73
Gæðingaskeið PP1 7,50

Ungmennaflokkur

Fjórgangssigurvegari: Signý Sól Snorradóttir / Kolbeinn frá Horni I
Tölt T1 6,80
Fjórgangur V1 7,43

Fimmgangssigurvegari: Kristófer Darri Sigurðsson / Ás frá Kirkjubæ
Tölt T2 6,27
Fimmgangur F1 6,63
Gæðingaskeið PP1 6,12

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link