Folar framtíðar
Þegar Landsmót er að baki og haustið nálgast er áhugavert að velta fyrir sér hvaða stóðhestsefni eru í uppsiglingu á næsta ári.
Tekinn hefur verið saman listi yfir 16 hæst metnu þriggja vetra folana (folar fæddir 2019) á Íslandi í kynbótamatinu en þeir koma því væntanlega til tamningar nú í haust og næsta vetur.
Þetta er skemmtilegur listi og verður spennandi á sjá hvað verður úr þessum folum.
Efsti þriggja vetra folinn með 133 stig í kynbótamati heitir Engill frá Prestsbæ, jarpur að lit og er undan Kveik frá Stangarlæk og Þotu frá Prestsbæ. Kveikur er fólki að sjálfsögðu í fersku minni, sérstaklega frá Landsmóti 2018 þar sem framganga hans var einstök hvað mýkt og fegurð varðar. Hann er farinn til Danmerkur en skilur eftir sig erfðaefni á Íslandi og á næstu árum munu koma hross til dóms undan honum hér á landi. Hann á fjóra syni á þessum lista en fleiri efnileg hross eru í pípunum undan honum og verður spennandi að sjá hvað verður úr þeim. Móðir Engils, hún Þota, er undan Orra frá Þúfu og Þoku frá Hólum og var til dæmis með 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið í hæsta dómi, hreint hestagull en hún stóð efst í elsta flokki hryssna á Landsmóti á Hólum 2016.
Annar á listanum með 131 stig er Skuggi frá Sumarliðabæ 2, undan Skýr frá Skálakoti og Bylgju frá Einhamri 2. Skýr á flesta folana á þessum lista, sex talsins, en hann stendur efstur allra stóðhesta í kynbótamatinu með 133 stig. Skýr hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landssýningu 2020. Bylgja frá Einhamri var eftirminnileg hryssa undan Stála frá Kjarri og dóttur Gusts frá Hóli og Gustu frá Litla-Kambi. Bylgja er afar fínleg, léttbyggð og eðlishágeng alhliða hryssa en fyrsta afkvæmi hennar, Anastasía frá Svarfholti, hlaut í sumar afar háan kynbótadóm, enda gæðingur á ferð. Bylgja er grá að lit og hefur Skuggi erft litinn frá henni.
Þriðji með 130 stig er Ringó frá Austurási, rauðskjóttur að lit, undan Skýr frá Skálakoti og Hlökk frá Stuðlum. Hlökk frá Stuðlum er dóttir Álfs frá Selfossi og Stöku frá Stuðlum. Staka er undan Akki frá Brautarholti og Þernu frá Arnarhóli. Í Hlökk koma því saman heiðurshryssurnar Álfadís frá Selfossi, Askja frá Miðsitju og Þerna frá Arnarhóli, en Álfadís er ein áhrifamesta ræktunarhryssa seinni tíma. Hlökk var úrtöku klárhryssa með 9,0 í einkunn fyrir tölt og brokk, vilja og fegurð í reið.
Fjórði folinn á lista er með 129 stig og heitir Dani frá Hjarðartúni, brúnn að lit, undan Kveik frá Stangarlæk og Dögg frá Breiðholti. Dögg er undan Orra frá Þúfu og Hrund frá Torfunesi og er stórmögnuð ræktunarhryssa. Hún hlaut til dæmis 9,5 fyrir frambyggingu og fegurð í reið á sínum tíma og heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Hún er amma Sindra frá Hjarðartúni sem sló í gegn eftirminnilega á síðasta landsmóti.
Fimmti folinn er með 128 stig og heitir Óli frá Hveragerði, hann er undan Skýr frá Skálakoti og Kommu frá Ytra-Vallholti. Komma þessi er undan Vilmundi frá Feti og Glettu frá Ytra-Vallholti, sem er undan Kveik frá Miðsitju en útaf þessari móðurlínu frá Vallholti hafa streymt mýktargæðingar í gegnum tíðina. Komma er fríð og framfalleg alhliða hryssa með 9,0 í einkunn fyrir tölt og fegurð í reið.
Sjötti folinn er einnig með 128 stig og heitir Fær frá Prestsbæ en hann er mikið skyldur efsta folanum, Engli þar sem hann er samfeðra honum og mæður þeirra eru alsystur. Þórdís, móðir hans, er leirljós að lit og er afar jafnvíg alhliða hryssa með 8,65 fyrir hæfileika og 9,0 í einkunn fyrir skeið, fet og samstarfsvilja.
Einnig með 128 stig er Glans frá Engjavatni undan Skýr frá Skálakoti og Grýtu frá Engjavatni. Grýta er undan Glotta frá Sveinatungu og Gerðu frá Gerðum en hún er undan Baldri frá Bakka og hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2020. Merkilegt er að undan Gerðu er búið að sýna 11 afkvæmi og þar af eru átta í fyrstu verðlaunum en ekki er algengt að svo mörg afkvæmi séu sýnd undan hryssunum. Grýta er góð alhliða hryssa með 8,48 fyrir hæfileika.
Straumur frá Geitaskarði er einnig með 128 stig. Hann er rauðstjörnóttur að lit undan Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og Háspennu frá Ragnheiðarstöðum. Adrían fór vel af stað í vor með sín fyrstu afkvæmi í dóm en efsti fjögurra vetra folinn í ár Valíant frá Garshorni á Þelamörk er undan honum. Háspenna er stórættuð; undan Spuna frá Vesturkoti og Hátíð frá Úlfsstöðum og er afar stór og myndarleg alhliða hryssa með 9,0 fyrir tölt.
Næsti foli er einnig með 128 stig og heitir Höfði frá Laugarbökkum, brúnn að lit, undan Spuna frá Vesturkoti og Gerplu frá Varmá. Spuni hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti 2018 og hefur sýnt og sannað kynbótagildi sitt. Gerpla er undan Kiljan frá Steinnesi og Lygnu frá Hrafnkelsstöðum. Hún er reist og fótahá, sóma alhliða hryssa en ekkert afkvæmi hefur komið til dóms undan henni ennþá.
Sirkus frá Hólum er með 128 stig. Hann er brúnskjóttur að lit undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Ösp frá Hólum. Fyrstu afkvæmin undan Þráni voru sýnd í vor eða sjö talsins. Þau hlutu öll fyrstu verðlaun sem gefur Þráni magnað start í ræktuninni. Ösp var stórfallegur gæðingur og stóð efst í sínum flokki á Landsmóti 2006 á Vindheimamelum. Hún er ein af fáum hryssum undan eða útaf Þrá frá Hólum sem hafa skilað hátt metnum stóðhestum en hryssurnar af þessari línu hafa margar verið gull og gersemar og skilað hafsjó af gæðingum.
Næstur á lista og með 127 stig er Kaðall frá Grenjum er grár að lit undan Kveik frá Stangarlæk og Kviku frá Grenjum sem er undan Huginn frá Haga og Kleópötru frá Seljabrekku, Orradóttur. Kvika er falleg á höfuð og framfalleg, myndarleg alhliða hryssa og afar jafnvíg á gangi með 8,40 fyrir hæfileika.
Strengur frá Þúfum er einnig með 127 stig. Hann er brúnn að lit undan Sólon og Hörpu frá Þúfum og er því útaf Hörpu frá Hofsstöðum, Gáskadóttur á báða vegu. Sólon frá Þúfum er fallegur stólpagæðingur og verður afar spennandi að sjá hvernig hann reynist í ræktun en búið er að sýna einn fola undan honum, mjög efnilegan; Grímar frá Þúfum en hann var í verðlaunasæti á síðasta Landsmóti. Harpa, móður Stengs, var með afar öfluga yfirlínu; hátt settan háls og sterka línu í baki, enda með 9,5 fyrir bak og lend, skrefmikil alhliða hryssa.
Einnig með 127 stig er Ýmir frá Auðsholtshjáleigu er brúnn að lit undan Skýr frá Skálakoti og Rímu frá Auðsholtshjáleigu en sú er undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu og Limru frá Laugarvatni. Ríma var háreist og aðsópsmikil alhliða hryssa, búið er að sýna einn hest undan henni í fullnaðardóm og hlaut hann góð fyrstu verðlaun.
Með 127 stig er Doktor frá Feti brúnn að lit undan Skaganum frá Skipaskaga og Kötlu frá Feti en sú er undan Kiljan frá Steinnesi og Grétu frá Feti. Skaginn hlaut háan kynbótadóm á sínum tíma; stórmyndarlegur hestur með m.a. 9,5 fyrir fegurð í reið í hæsta dómi. Þá hlaut hann fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á Landssýningu 2020. Katla frá Feti er undan Kiljan frá Steinnesi og Grétu frá Feti og er því annar folinn á þessum lista útaf Gerðu frá Gerðum. Katla var afar framfalleg hryssa með 9.0 í einkunn fyrir háls, herðar og bóga. Þá var hún skrefmikil og hreingeng ahliða hryssa með 8,45 fyrir hæfileika.
Hrafn frá Ytri-Skógum er með 127 stig. Hann er brúnn að lit undan Skýr frá Skálakoti og Gnótt frá Ytri-Skógum sem er undan Aroni frá Strandarhöfði og Gná frá Ytri-Skógum, Orradóttur. Báðir foreldrar Gnóttar hafa hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og eftirtektarvert hvað Aronsdætur eru að skila af góðum hrossum þessa dagana. Gnótt hefði mátt vera betur gerð í byggingu en var gæðingshryssa á gangi og er þegar búin að skila tveimur hrossum í fyrstu verðlaun en annað þeirra er mýktargæðingurinn Blíða frá Ytri-Skógum.
Sextándi folinn er svo Stirnir frá Stóra-Vatnsskarði hann er einnig með 127 stig. Stirnir er rauðtvístjörnóttur að lit og er undan Forki frá Breiðabólsstað og Kylju frá Stóra-Vatnsskarði. Forkur er stórmyndarlegur hestur að vallarsýn, hlaut háan kynbótadóm sjálfur og fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi nú í sumar. Kylja er undan Kiljan frá Steinnesi og hinni frægu Lukku frá Stóra-Vatnsskarði. Eftirtektarvert er að þrjár af mæðrum folanna á þessu lista eru undan Kiljan frá Steinnesi. Kylja var afar virkjamikill, flugviljugur og hágengur alhliða gæðingur og verður spennandi að sjá hverju hún mun skila til ræktunarinnar.
Spennandi verður að sjá hvað verður úr þessum folum og fleirum til framtíðar en ljóst er að gríðarleg gæði eru í uppsiglingu í ungviði á Íslandi þessa stundina og þær framfarir sem við höfum séð í íslenskri hrossarækt eru hvergi nærri að þrotum komnar. Hrossarækt er í sjálfu sér samstarfsverkefni þar sem hver og einn ræktandi getur ekki starfað í einangrun til að sækja fram heldur verður að sækja sér erfðaefni víða að. Það er ljóst að ræktendur á Íslandi þurfa ekki að kvíða því að geta ekki sótt sér eldsneyti í fola framtíðarinnar til að kynda það bál sem erfðaframfarir á Íslandi eru.
| Nafn og uppruni | BLUP | Faðir | Móðir |
| Engill frá Prestsbæ | 133 | Kveikur frá Stangarlæk 1 | Þota frá Prestsbæ |
| Skuggi frá Sumarliðabæ 2 | 131 | Skýr frá Skálakoti | Bylgja frá Einhamri 2 |
| Ringó frá Austurási | 130 | Skýr frá Skálakoti | Hlökk frá Stuðlum |
| Dani frá Hjarðartúni | 129 | Kveikur frá Stangarlæk 1 | Dögg frá Breiðholti, Gbr. |
| Óli frá Hveragerði | 128 | Skýr frá Skálakoti | Komma frá Ytra-Vallholti |
| Fær frá Prestsbæ | 128 | Kveikur frá Stangarlæk 1 | Þórdís frá Prestsbæ |
| Glans frá Engjavatni | 128 | Skýr frá Skálakoti | Grýta Engjavatni |
| Straumur frá Geitaskarði | 128 | Adrían frá Garðshorni á Þelamörk | Háspenna frá Ragnheiðarstöðum |
| Höfði frá Laugarbökkum | 128 | Spuni frá Vesturkoti | Gerpla frá Varmá |
| Sirkus frá Hólum | 128 | Þráinn frá Flagbjarnarholti | Ösp frá Hólum |
| Kaðall frá Grenjum | 127 | Kveikur frá Stangarlæk 1 | Kvika frá Grenjum |
| Strengur frá Þúfum | 127 | Sólon frá Þúfum | Harpa frá Þúfum |
| Ýmir frá Auðsholtshjáleigu | 127 | Skýr frá Skálakoti | Ríma frá Auðsholtshjáleigu |
| Doktor frá Feti | 127 | Skaginn frá Skipaskaga | Katla frá Feti |
| Hrafn frá Ytri-Skógum | 127 | Skýr frá Skálakoti | Gnótt frá Ytri-Skógum |
| Stirnir frá Stóra-Vatnsskarði | 127 | Forkur frá Breiðabólsstað | Kylja frá Stóra-Vatnsskarði |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH