Melgerðismelamóti breytt

  • 11. ágúst 2022
  • Fréttir

Vegna dræmrar þátttöku hefur verið ákveðið að hætta við gæðingakeppnina sem verða átti á Melgerðismelum um helgina!

Þess í stað verða haldnar kappreiðar og Bæjakeppni Funa.

Í bæjakeppninni er keppt í öllum flokkum og er öllum opin!.

Skráning er á staðnum og hefst kl. 13, en keppnin sjálf hefst kl. 14.

Reiknað er með að kappreiðar hefjist kl. 16:30 og lýkur skráningu á staðnum um kl. 15:30.

Keppt verður í 100 m flugskeiði, 150 m skeiði, 250 m skeiði, 300 m brokki og 300 m stökki.

Engin skráningargjöld.

Eftir kappreiðar verður farið í reiðtúr um Melana og nágrenni og eftir það verður grill og notaleg stund í Funaborg.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link