Upp komst um skelfilega vanrækslu í Svíþjóð-
Tuttugu hross eru nú í umsýslu lögreglunnar í Ashammar í Svíþjóð eftir að upp komst um skelfilega vanrækslu þeirra. Samkvæmt frétt sænska blaðsins Arbetarbladet voru hrossin í eigu Inge Johansson, formanns hestamannafélagsins Gyda.
Aðbúnaður hrossanna var með versta móti, eins og sjá má í fréttinni. Hrossin stóðu vanfóðruð í þröngum básum. Hófar hrossanna voru ofvaxnir, höfðu ekki verið klipptir svo mánuðum skipti svo þeir voru allt að 16-18 cm langir. Lögreglan safnar nú peningum til að fjármagna kostnað við ummönnun hrossanna.
Inge vék úr stjórn hestamannafélagsins Gyda, en viðtal við ritara þess vegna fréttanna má nálgast hér.
Inge hyggst hins vegar áfrýja kæru, viðtal við hann má nálgast hér.
Nokkrir fyrrverandi meðlimir hestamannafélagsins halda því fram að lengi hafi verið vitað af vanrækslu formannsins. Grein og viðtöl um það má finna hér.
Í kjölfari hefur öll stjórn hestamannafélagsins Gyda af sér vegna málsins. Frétt um það má nálgast hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH