Af Uppskerufögnuði skagfirskra hestamanna

  • 10. desember 2012
  • Fréttir
Af Uppskerufögnuði skagfirskra hestamanna

Uppskerufögnuður hestamanna í Skagafirði var haldinn á laugardagskvöldið í Miðgarði.  Farið var yfir afrek helstu hrossa og knapa á árinu.  Kynntir voru stóðhestar HSS fyrir næsta sumar, boðið var upp á tónlistaratriði og léttar veitingar.  Bjarni Þorkelsson á Þóroddsstöðum var síðan ræðumaður kvöldsins og var gerður góður rómur að hans erindi.  Bjarni ræddi um ræktunartakmarkiðið í hrossarækt og fleira tengt hrossapólitík dagsins, hann las minningar frá föður sínum um skagfirska gæðinga og fór með gamanmál.  Í heildina var þetta hin besta kvöldstund. 

 
Frá Hrossræktarsambandi Skagfirðinga
 
Hrossaræktarbú Skagafjarðar  – Ófeigsbikarinn
Flugumýri II
 
Hæstu hross í hverjum flokki
4 v. stóðhestar
Hraunar frá Vatnsleysu
 
5 v. stóðhestar
Lord frá Vatnsleysu
 
6 v. stóðhestar
Hrannar frá Flugumýri II
Hrannar hlut einnig Sölrlabikarinn sem hæst dæmda kynbótahross ársins í Skagafirði, en hann hlaut 8,85 í aðaleinkunn sem var hæsta einkunn ársins.
 
7 v. og eldri stóðhestar
Seiður frá Flugumýri II 
 
4 v. hryssur
Stúlka frá Þúfum
 
5 v. hryssur
Storð frá Hólum
 
6 v. hryssur
Ferna frá Hólum
 
7 v. hryssur
Blika frá Enni 
 
Kynbótaknapi Skagafjarðar – Kraftsbikarinn
Gísli Gíslason
 
Frá Hestaíþróttaráði Skagafjarðar 
Hestaíþróttamenn Skagafjarðar:
 
Barnaflokkur
Guðmar Freyr Magnússon
 
Unglingaflokkur
Þórdís Inga Pálsdóttir
 
Ungmennaflokkur
Sigurður Rúnar Pálsson
 
Fullorðinsflokkur
Þórarinn Eymundsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link