Fræðsludagur og námskeið um knapamerkin
„Laugardaginn 17 nóvember verður boðið upp á fræðsludag og námskeið um Knapamerkin auk þess sem prófdómurum verður boðið upp á að uppfæra dómararéttindi sín og nýjum að spreyta sig á að taka próf. Fyrri hluti námskeiðsins verður öllum opinn sem áhuga hafa á að fræðast um Knapamerkin og/eða ætla sér að bjóða upp á Knapamerkjanámskeið í vetur. Seinni hluti námskeiðsins er einungis hugsaður fyrir þá aðila (reiðkennara) sem hyggjast taka prófdómarapróf og/eða þá sem nú þegar eru með prófdómararéttindi og hafa hug á að viðhalda réttindum sínum.
Ath. Þeir sem eru með prófdómararéttindi þurfa að mæta á þetta námskeið og taka próf til að viðhalda núverandi réttindum. Staðsetning – Fáksheimilið og Reiðhöllin í Víðidal Dagsetning – 17 nóvember frá klukkan 11 til 18. Það er frítt á fyrri hluta námskeiðsins en verð fyrir þá sem mæta á prófdómaranámskeið er 20.000 krónur og innifalið í því er kaffi og snarl yfir daginn auk æfinga og próftökugjalds. Skráning og frekari upplýsingar hjá Helgu í síma: 863 – 4717 eða í tölvupósti: [email protected] fyrir 17 október.“
Dagskrá – (með fyrirvara um smávægilegar breytingar)
Kl. 10:30 – 10:45 Kynning Helga Thoroddsen
Kl. 11:00 – 11:30 Erindi frá reiðkennara Kl. 11:30 – 12:00 Erindi frá nemendum
Kl. 12:00 – 12: 15 Fyrirspurnir og umræður
Þessi hluti námskeiðsins er öllum opinn sem áhuga hafa á að kynna sér Knapamerkin og leita upplýsinga um þau.
Matarhlé
Eftirfarandi hluti námskeiðsins er einungis ætlaður reiðkennurum og prófdómurum
Kl: 13:00 – 13:30 Efst á baugi í Knapamerkjum – farið yfir helstu verkefni, áherslur í prófum og hvað er framundan.
Umræður
Kl: 13: 40 – 15:30 Farið yfir helstu áhersluatriði í prófum og æfð prófdæming af myndböndum.
Kaffihlé
Kl: 16:00 – 18:00 Prófdómarapróf
Dæmd verða 2 próf á hverju stigi Knapamerkjanna og prófgögnum skilað til prófdómara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH