Erla Guðný kjörin íþróttamaður Andvara

  • 30. nóvember 2011
  • Fréttir
Erla Guðný kjörin íþróttamaður Andvara

Á aðalfundi Andvara þann 29.nóvember sl. var tilkynnt val íþróttamanns Andvara sem er í ár Erla Guðný Gylfadóttir.

„Erla Guðný er ein af okkar fremstu knöpum og hefur hún staðið sig mjög vel á keppnisvellinum og má þar nefna að hún vann opna flokkinn á svellköldum, var í 6.sæti í Landsliðstölti, Ístölti Allra sterkustu og var í úrslitum á Landsmóti í bæði tölti og B-flokki gæðinga.

Erla Guðný á líka stóran þátt í velgengni yngri knapa Andvara því hún var með keppnisnámskeið fyrir krakkana í vetur og fylgdi þeim á Landsmót.

Stjórn Andvara vill óska Erlu Guðnýju innilega til hamingju með árangurinn og titilinn.“

Eftirfarandi er árangur Erlu veturinn 2011:

  • Vetrarleikar Andvara (tók þátt í einum) – 2.sæti vetrarleikar I
  • Svellkaldar konur – 1.sæti opinn flokkur
  • Landsliðstölt, Ístölt Allra sterkustu – 6.sæti (b-úrslit)
  • Íþróttamót Andvara (A úrslit í öllum greinum)- 1.sæti tölt, 2.sæti fjórgangur, 6.sæti fimmgangur í opnum flokki
  • Gæðingamót Andvara- 2.sæti B-flokkur
  • Reykjavíkurmeistaramót Fáks A-úrslit- 2.sæti fjórgangur og 5. sæti tölt meistara
  • Stöðulisti tölt fyrir LM- 6.sæti af 30 efstu tölteinkunum yfir landið fyrir LM 2011
  • Landsmót Vindheimamelar- tölt, úrslit 9.sæti, 11. sæti eftir forkeppni í B-flokki gæðinga
  • Suðurlandsmót- 4.sæti tölt meistara
  • Metamót Andvara – 3.sæti tölt opinn flokkur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link