Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum Laus pláss fyrir lið í Vesturlandsdeildina

  • 17. október 2022
  • Fréttir
Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum auglýsir til umsóknar laus liðspláss í deildinni á komandi tímabili, veturinn 2023

Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni í hestaíþróttum sem fram fer í Faxaborg, Borgarnesi. Sjö lið etja kappi saman sem saman standa af fjórum til fimm einstaklingum. Hvert lið sendir 3 til 5 keppendur til leiks í hverja grein en liðin ráða því sjálf hvort þau tefla fram fjórum eða fimm liðsmönnum í deildinni.

Keppnisgreinar á komandi tímabili verða eftirfarandi:

  • Fjórgangur V1 föstudaginn 24. febrúar
  • Slaktaumatölt T2 föstudaginn 10. mars
  • Gæðingafimi föstudaginn 24. mars
  • Fimmgangur F1 miðvikudaginn 5. apríl
  • Tölt T1 og Flugskeið/100m föstudaginn 21. apríl

„Sæki fleiri lið um þátttöku en pláss eru fyrir verður haldin úrtaka. Ef knapar hafa áhuga á að vera með en eru ekki komnir í liðþá endilega hafa samband við stjórn sem mun þá reyna aðaðstoða eftir bestu getu við koma viðkomandi í samband viðlið sem vantar knapa. Umsóknir berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi 10. nóvember n.k,“ kemur fram í tilkynningu frá stjórn deildarinnar.

Leikreglur Vesturlandsdeildarinnar

1. Keppnin og fyrirkomulag

1a. Vesturlandsdeildin er tvíþætt stigakeppni í hestaíþróttum, þ.e. einstaklings– og liðakeppni.

1b. Liðin eru sjö og saman standa þau af fjórum tilfimm keppendum sem allir þurfa að hafa náð 16 áraaldri á almanaksárinu. Skráðir keppendur geta þvíverið á bilinu 28 – 35 talsins.

1c. Liðin velja sér liðsstjóra sem er tengiliður liðsinsvið stjórn deildarinnar.

1d. Í upphafi hvers tímabils greiða liðin þátttökugjaldsem ákveðið er á aðalfundi hverju sinni. Greiða þarfþátttökugjald liðs fyrir 1.desember ár hvert og tilkynnaþarf nöfn liðsmanna eigi síðar en 2 vikum fyrir fyrstukeppni.

1e. Keppt er í sex greinum hestaíþrótta á fimmkvöldum í febrúar, mars og apríl. Keppnisgreinarnareru fjórgangur, fimmgangur, tölt, slaktaumatölt, gæðingafimi og fljúgandi/100 m skeið þar sem stjórnákveður eftir aðstæðum hvort skeiðið sé í gegn um höll eða úti. Stjórn skal tilkynna knöpum tímanlegaákvörðun sína.

1f. Riðin eru A og B úrslit í hringvallagreinum en efstiknapi B úrslita vinnur sér ekki þátttökurétt í A úrslitum.Aðeins 3 efstu knapar frá hverju liði telja til stiga hvortsem um ræðir einstaklings eða liðakeppni

1g. Stjórn ákveður hvort riðin séu úrslit í gæðingafimiog sé það kynnt í upphafi deildarinnar .

1h. Hvert lið sendir 3 – 5 keppendur til leiks í hverjakeppnisgrein en aðeins 3 efstu knapar telja til stigafyrir sitt lið.

1i. Liðsstjóri tilkynnir keppendur til stjórnar eigi síðaren 48 tímum fyrir keppni.

1j. Forfallist fulltrúi liðs eftir að ráslisti hefur veriðgefinn út er liðinu heimilt að tilnefna annan keppandasem fær þá sama rásnúmer og sá forfallaði. Skiptiknapi hins vegar um hest eftir útgáfu ráslista færisthann fremst í rásröð.

1k. . Forfallist knapi vegna óumdeildra aðstæðna mákalla til nýjan knapa í lið. Það er í höndum stjórnar aðfara yfir hvert tilfelli fyrir sig.

1l. mótin skulu dæmd af fimm dómurum

1m. hvert lið má tefla fram villiketti einu sinni á tímabilinu en má þó ekki senda fleiri en 5 liðsmenn í keppni það kvöld. Þarf því að lágmarki einn liðsmaðurað sitja hjá það kvöld sem liðið teflir fram villiketti.

2. Stigakeppnin

2a. Í einstaklingskeppninni er stigagjöfinni þannigháttað að efstu 10 keppendur fá stig.
1. sæti fær þá 12 stig
2. sæti 10 stig
3. sæti fær 8 stig og svo koll af kolli niður í 10.sæti sem gefur þá 1 stig.

2b. Sá einstaklingur sem safnar flestum stigum á tímabilinu sigrar deildina

2c. Í liðakeppninni telja efstu 3 knapar í hverju liði til stiga. Sá í neðsta sæti fær 1 stig og svo koll af kolli upp í 21 stigfyrir 1. sæti

2d. Það lið sem safnar flestum stigum á tímabilinu sigrarliðakeppni deildarinnar.

2.e Liðin í 1. – 5. sæti halda sæti sínu í deildinni til næstatímabils að því gefnu að hið minnsta tveir liðsmenn haldiáfram undir merkjum liðsins. Komi sú staða upp innan liðssem tryggt hefur sér þátttökurétt næsta ár þá skiptist það í tvo tveggja manna kjarna sem hvor um sig vilja haldaáfram undir merki þess liðs halda þeir þátttökuréttinumsem töldu til fleiri stiga á liðnu tímabili.

2f. Liðin í 6. – 7. sæti heltast því úr lestinni en geta þóáunnið sér sæti sitt á ný gegnum úrtöku fyrir næsta tímabil.

2g. Í upphaf næsta keppnistímabils skal haldin úrtaka þaðsem keppt er um tvö laus sæti sækist fleiri en tvö lið eftirþátttökurétti.

3. Sérreglur keppnisgreina

3.a Áður en knapi hefur keppni er honum heimilt að ríðaeina ferð fram hjá áhorfendum þó að ekki sé um stystu leiðað skammhlið að ræða.

3b. Í fimmgangi skal skeið sýnt á langhlið fjær áhorfendumog eru leyfðar ferjuleiðir að báðum sprettum.

3c. Í gæðingafimi skal fylgt sömu reglum og keppt er í Meistaradeild hvert ár eða notast við reglur LH. Stjórntekur ákvörðun um þetta og tilkynnir leikreglur í upphafideildarinnar ár hvert.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link