Opið er fyrir umsóknir í Suðurlandsdeildina
„Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn 2-3 atvinnumanna og 3 áhugamanna. Dregið verður úr umsóknum. Þau lið sem féllu úr deildinni 2022 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um. Liðin verða áfram skipuð 2-3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Í öllum greinum nema skeiði keppa 2 áhugamenn og 2 atvinnumenn, í skeiði keppir 1 áhugamaður og 1 atvinnumaður. Áhugamaður má keppa sem atvinnumaður en atvinnumaður má ekki keppa sem áhugamaður. Áfram verður Suðurlandsdeildin einungis liðakeppni en þrjú stigahæstu liðin verða verðlaunuð,“ kemur fram í tilkynningu frá stjórn deildarinnar
Hér fyrir neðan eru skilgreiningar á því hverjir teljast sem atvinnumenn og hverjir áhugamenn ásamt dagskrá deildarinnar.
Atvinnumaður: Allir ásamt ungmennum.
Áhugamaður: Er að lágmarki 22 ára á árinu og má ekki hafa keppt í meistaraflokk síðustu 2 ár.
Keppniskvöldin verða fjögur:
7. mars – Parafimi
21. mars – Fjórgangur
4. apríl – Fimmgangur
18. apríl – Tölt og skeið
21. apríl – lokahóf
Stjórn Suðurlandsdeildarinnar hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylli inngangsskilyrði. Þátttökugjald 2023 er 160.000 kr. Innifalið í gjaldinu eru tveir æfingatímar í Rangárhöllinni fyrir hvert keppniskvöld. Allar spurningar sem og umsóknir vegna Suðurlandsdeildar skulu sendar á [email protected].
„Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Suðurlandsdeildina sem er að hefja sitt sjöunda tímabil.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH