„Mér sýnist menn vera með flottann hestakost“

  • 22. október 2022
  • Fréttir
Viðtal við Viðar Ingólfsson og Hákon Dan Ólafsson, liðsmenn Hest.is/Hrímnis í Meistaradeildinni

Það er alltaf mikil spenna fyrir Meistaradeildinni og greinilegt að lesendur Eiðfaxa er spenntir fyrir komandi keppnistímabili. Blaðamaður Eiðfaxa frétti að lið Hrímnis / Hest.is væri búið að bæta við sig nýjum liðsmanni.

Viðar Ingólfsson er liðsstjóri liðsins en með honum eru þeir Flosi Ólafsson, Arnar Bjarki Siguðarson, Benjamín Sandur Ingólfsson og nýr í liðið bætist við Hákon Dan Ólafsson.

“Mér líst vel á veturinn. Mér sýnist menn vera með flottann hestakost og að þetta verði bara skemmtilegt. Það er gaman að fá inn ungan og efnilegan knapa í liðið,” segir Viðar og vonast til að liðinu eigi eftir að ganga vel næsta vetur.

Blaðamaður ákvað að slá á þráðinn til Hákons, en hann var í hesthúsinu og er byrjaður að undirbúa sig fyrir komandi keppnistímabil. ““Ég er spenntur fyrir vetrinum. Þetta er stórt tækifæri sem ég er þakklátur fyrir að hafa fengið, og verður gaman að fá að spreyta sig. Viðar var að aðstoða mig síðasta vetur með keppnishrossin mín og ég hafði haft orð af því að mig langaði til þess að komast í lið í meistaradeildinni, svo ég var virkilega glaður með það að hafa komist í liðið.”

Hákon varð Íslandsmeistari í fjórgangi í ungmennaflokki í sumar á Hátíð frá Hólaborg og stefnir hann á að mæta með hana í deildina í vetur. “Ég stefni á að mæta með Hátíð í fjórganginn, ásamt því að ég er að undirbúa fleiri hross fyrir deildina. Það kemur í ljós hvernig spilast úr því þegar nær dregur sem er bara spennandi,” segir Hákon að lokum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link