Skuggamenn vilja ekki sameiningu
Myndin er tekin í Faxaborg, sem er sameiginleg reiðhöll hestamannafélaganna Skugga og Faxa.
Skuggamenn í Borgarnesi kolfelldu tillögu á aðalfundi félagsins í gærkvöldi um að sameinast Faxa í Borgarfirði með 46 atkvæðum gegn 16. Faxamenn samþykktu hins vegar samskonar tillögu á sínum aðalfundi með 26 atkvæðum gegn 7.
Marteinn Njálsson, formaður Skugga, segir þetta nokkur vonbrigði. Málið hafi átt sér langan aðdraganda og fólk búið að leggja talsverða vinnu í undirbúning. Flestir sem tjáðu sig um málið í aðdragandanum hafi virst á þeirri skoðun að sameina bæri félögin. Óvenju góð mæting hafi verið á aðalfundinn, sem kom á óvart miðað við undanfarin ár, og niðurstaðan hafi orðið þessi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH