Framboð til aðalstjórnar LH
Þórhildur Katrín Stefánsdóttir er formaður Glampa og býður sig fram til stjórnar Landsamband hestmannafélaga
Ég heiti Þórhildur Katrín Stefánsdóttir og er formaður Glampa nýstofnaðs hestamannafélags á Djúpavogi. Hestamannafélagið Glampi stendur nú í viðræðum við sveitarfélagið Múlaþing og heimastjórn gamla Djúpavogshrepps um úthlutun á lóð undir félagshúss og félagssvæði.
Ég kynntist hestamennsku snemma á barnsaldri og þá fyrst þegar ég var í sveit hjá móðurbróður mínum. Ég stundaði síðar hestamennsku í hestamannafélaginu Herði og þangað til að við fjölskyldan ákváðum fyrir rúmum tveimur árum að flytja á sveitabæ við Djúpavog með það í huga að búa í sveit og rækta hross. Við erum meðlimir í hestamannafélaginu Hornfirðing sem er frábært hestamannafélag með gríðalega sterkt æskulýðsstarf en í ljósi fjarlægða og mikils áhuga Djúpavogsbúa á hestamennskunni var tímabært að byggja upp hestamannafélag á Djúpavogi. Þá hefur hestaeigendum á Djúpavogi fjölgað síðustu tvö ár enda hestamennska bráðsmitandi íþrótt.
Ég er lögmaður að mennt og starfa sem verkefnastjóri hjá Múlaþingi. Ég hef mikinn áhuga á nýliðun og æskulýðsstarfi í hestamennsku. Ég hef áhuga á uppbyggingu félagshúsa hjá hestamannafélögum og öllu því sem tengist því að auka og auðvelda aðgengi almennings að hestamennsku. Þá hef ég einnig mikinn áhuga á öryggismálum og tryggingamálum í tengslum við hestamennsku.
Ég tel að reynsla mín af félagsstörfum, stjórnarsetu í íþróttafélögum og starfsreynslu geta nýst til stjórnarsetu hjá Landssambandi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH