Nýjir íþróttadómarar
Helgina 21. – 22. október fór fram íþróttadómarapróf á Lotushof í Þýskalandi. Það voru fimmtán sem tóku próf en tveir aðilar voru að reyna fá landsréttindi og þrettán alþjóðleg réttindi.
Maike Morbach frá Þýskalandi er nú orðinn alþjóðlegur íþróttadómari FEIF og þrír aðilar stóðust verklega prófið Gabi Ronneberger (Þýskaland), Kia Holmquist (Svíþjóð) og Logi Laxdal (Ísland) en þeim býðst öllum að taka bóklega prófið aftur í ársbyrjun 2023 en til að verða alþjóðlegur dómari FEIF verða þau að standast bæði prófin.
Oda Mee B. Storsveen frá Noregi stóðst landsprófið.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt