Glódís Rún og Kamban halda forystu sinni í barnaflokki
Milliriðill í barnaflokki var nú að ljúka og heldur Glódís Rún Sigurðardóttir úr hestamannafélaginu Ljúf forystu sinni á hestinum Kamban frá Húsavík. Þórdís Inga Pálsdóttir skaut sér upp í annað sæti á hinum gráa Kjarval frá Blönduósi og Birta Ingadóttir tryggði sér sæti í A-úrslitum á Frey frá Langholti.
Það gerðu einnig Viktor Aron Adolfsson á Leik frá Miðhjáleigu, Guðmar Freyr Magnússun á Frama frá Íbishóli, Gyða Helgadóttir á Hermanni frá Kúskerpi og Eva Dögg Pálsdóttir á Heimi frá Sigmundarstöðum. Börnin sem höfnuðu í sætum 8-15 geta hins vegar tryggt sér sæti í A-úrslitum með því að sigra B-úrslit sem fara fram á föstudaginn kl. 14.
Hestakostur barnanna var ættstór og glæsilegur og var gaman að sjá hvernig krakkarnir útfærðu sýningar sínar af fágun og eldmóð.
Meðfylgjandi eru úrslit úr milliriðlinum.
1 Glódís Rún Sigurðardóttir / Kamban frá Húsavík 8,73
2 Þórdís Inga Pálsdóttir / Kjarval frá Blönduósi 8,59
3 Birta Ingadóttir / Freyr frá Langholti II 8,58
4 Viktor Aron Adolfsson / Leikur frá Miðhjáleigu 8,48
5 Guðmar Freyr Magnússun / Frami frá Íbishóli 8,34
6 Gyða Helgadóttir / Hermann frá Kúskerpi 8,31
7 Eva Dögg Pálsdóttir / Heimir frá Sigmundarstöðum 8,26
8 Rúna Tómasdóttir / Brimill frá Þúfu 8,23
9 Sylvía Sól Guðmunsdóttir / Skorri frá Skriðulandi 8,22
10 Þorri Mar Þórisson / Ósk frá Hauganesi 8,22
11 Katla Sif Snorradóttir / Rommel frá Hrafnsstöðum 8,21
12 Karitas Ármann / Bríet frá Friðheimum 8,21
13 Ingunn Ingólfsdóttir / Hágangur frá Narfastöðum 8,21
14 Matthías Már Stefánsson / Hvinur frá Hamrahóli 8,21
15 Dagbjört Skúladóttir / Tígull frá Runnum 8,19
16 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Hrönn frá Árbakka 8,17
17 Katrín Eva Grétarsdóttir / Gnýr frá Árbæ 8,16
18 Kristín Hermannsdóttir / Fursti frá Efri-Þverá 8,12
19 Bríet Guðmundsdóttir / Dagbjartur frá Flagbjarnarholti 7,99
20 Ómar Högni Guðmarsson / Gulltoppur frá Þjóðólfshaga 1 7,99
21 Harpa Sigríður Bjarnadóttir / Gustur frá Margrétarhofi 7,98
22 Elísa Benedikta Andrésdóttir / Flötur frá Votmúla 1 7,96
23 Stefán Hólm Guðnason / Rauðka frá Tóftum 7,84
24 Þorgils Kári Sigurðsson / Sýnir frá Hallgeirseyjarhjáleigu 7,83
25 Aron Freyr Sigurðsson / Svaðilfari frá Báreksstöðum 7,80
26 Anton Hugi Kjartansson / Sprengja frá Breiðabólsstað 7,53
27 Margrét Hauksdóttir / Kappi frá Brimilsvöllum 7,42
28 Selma María Jónsdóttir / Sproti frá Mörk 7,40
29 Logi Örn Axel Ingvarsson / Dama frá Stakkhamri 2 7,28
30 Heiða Rún Sigurjónsdóttir / Töfri frá Þúfu 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH