Sif og Ólafur verðlaunuð
Á aðalfundi Smára á dögunum voru veitt verðlaun fyrir góðan árangur á keppnis og kynbótabrautum á árinu 2013.
Blæsbikarinn er afhentur þeim félagsmanni er þykir hafa staðið uppúr hvað varðar árangur jafnt og faglegrar framkomu á síðasta ári. Blæsbikarinn hlýtur að þessu sinni Ólafur Brynjar Ásgeirsson.
Ólafur var mjög sýnilegur á mótum ársins 2013 og náði víða góðum árangri. Hann keppti m.a. í Meistaradeild VÍS, Uppsveitadeild Íshesta, íþróttamóti Sörla, Reykjarvíkurmóti Fáks, Gullmótinu, Íslandsmóti fullorðinna, Gæðingamóti Smára, Metamóti Spretts svo eitthvað sé nefnt.
Ólafur náði m.a. þessum árangri :
Uppsveitadeild Íshesta
· 2 sæti í fjórgangi á Hugleik frá Galtanesi 7,57
· 3 sæti í fimmgangi á Álm frá Skjálg 6,45
· 2 sæti í tölti á Védísi frá Jaðri 7,67
· 7 sæti í skeiði á Rauðkolli frá Eyvindarmúla
· 2 sæti í einstaklingsstigakeppninni og í sigurliði deildarinnar
Sumarsmellur Harðar
· 1 sæti í tölti á Védísi frá Jaðri 7,78
· 2 sæti í fjórgangi á Hugleik frá Galtanesi 7,17
Íslandsmót fullorðinna
· 18 sæti í tölti á Védísi frá Jaðri 7,27
· 9 sæti í fjórgangi á Hugleik frá Galtanesi 7,57
· 13 sæti í fimmgangi á Þresti frá Hvammi 6,97
Gæðingamót Smára
· 1. Sæti í A-flokki gæðinga á Nótt frá Jaðri 8,50
· 1. Sæti í B-flokki gæðinga á Dáð frá Jaðri 8,61
Hæst dæmda kynbótahross í eigu Smárafélaga 2013 þetta árið var Sif frá Helgastöðum 2
F. IS1996181791 – Geisli frá Sælukoti (Aeink. 8,28)
M. IS2001288581 – Strípa frá Helgastöðum 2
Hæsti dómur 2013
Sýnandi: Daníel Jónsson
Höfuð 9.5 Tölt 9
Háls/herðar/bógar 8.5 Brokk 8,5
Bak og lend 7.5 Skeið 9
Samræmi 7.5 Stökk 8
Fótagerð 7.5 Vilji og geðslag 9
Réttleiki 7.5 Fegurð í reið 9,5
Hófar 7 Fet 7,5
Prúðleiki 7.5 Hægt tölt 8,5/ Hægt stökk 8
Sköpulag 7.83 Hæfileikar 8,85
Aðaleinkunn 8,44
Ræktandi : Loftur S. Magnússon
Eigendur 2013 : Loftur S. Magnússon 75%
Þorsteinn G. Þorsteinsson 25 %
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH