Skráning á námskeið með Olil og Guðmundi í dag (18. jan).
1. febrúar hefst Keppnisnámskeið fyrir mikið vana knapa hjá Olil Amble reiðkennara.
Frábært tækifæri fyrir mjög vana knapa sem vilja skerpa betur á hæfni sinni og fá kennslu frá einum fremsta reiðkennara landsins. Kennt á þriðjudögum, klukkustund í senn, alls í 12 skipti. Námskeiðið byrjar þann 1. febrúar til 19. apríl. Fyrsti tími kvöldsins kl. 17: 00 – 18:00. Síðasti tími kl. 21:00 –22:00. Aðeins 2 nemendur saman í kennslu. Staðsetning: Reiðhöllin í Víðidal. Námskeiðið er ætlað fullorðnum eða 18. ára og eldri.
Skráning verður í Reiðhöllinni á skrifstofu Fáks, þann 18.janúar 20:00 – 21:00
ATH. Aðeins 10 pláss í boði, aðeins skuldlausir Fáksfélagar fá skráningu. Takmarkaður fjöldi. Skráð og greitt á staðnum. Verð fyrir 12 skipti kr. 69.000.
26. febrúar Reiðnámskeið fyrir Fáksfélaga.
Námskeið fyrir minna og meira vana knapa hjá Guðmundi Arnarsyni reiðkennara.
Í boði eru 8 verklegir tímar , kennt á laugardögum, klukkustund í senn.
1 bóklegur tími. Námskeiðin hefjast 26. febrúar til 16. apríl.
Staðsetning: Reiðhöllin í Víðidal. Námskeiðið er fyrir 18.ára og eldri.
Verð kr. 22.000. Aðeins 4 í hverjum hópi. Takmarkaður fjöldi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH