Landsamband hestamanna Íþróttaknapi ársins

  • 11. nóvember 2022
  • Fréttir
"Með frábærann heildar árangur í íþróttakeppni á árinu 2022"

Íþróttaknapi ársins 2022 er Árni Björn Pálsson en valið var kynngjört rétt í þessu á verðlaunahátíð Landsambandsins sem haldin er í Félagsheimili Fáks. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Árni Björn vann stóra sigra á árinu í tölti T1 á Ljúf frá Torfunesi og er efstur á stöðulista ársins í Tölti eftir sigra á Íslandsmóti og Landsmóti. Hann sigraði Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum og er einnig efstur á stöðulista ársins í fimmgangi. Árni er með frábæran heildar árangur í íþróttakeppni á árinu 2022 og hlýtur nafnbótina Íþróttaknapi ársins.“

Eiðfaxi óskar Árna Birni innilega til hamingju með árangur ársins!

 

Aðrir tilnefndir:

Elvar Þormarsson
Jakob Svavar Sigurðsson
Jóhanna Margrét Snorradóttir
Sara Sigurbjörnsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link