Gæðingaknapi ársins
Gæðingaknapi ársins 2021 er Sigurður Sigurðarson en valið var kynngjört rétt í þessu á verðlaunahátíð Landsambandsins sem haldin er í Félagsheimilinu í Fáki. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Sigurður Sigurðarson hefur um árabil átt gríðalega góðu gengi að fagna í gæðingakeppni með fjölda hrossa. Hann sigraði A-flokkinn á Landsmóti eftir að hafa farið sannkallaða Krísuvíkurleið upp úr B-úrslitum og alla leið til sigurs ásamt því að sýna fjölda hrossa í gæðingakeppnum á árinu sem er að líða. Sigurður Sigurðarson hlítur nafnbótina Gæðingaknapi ársins 2022.“
Eiðfaxi óskar Sigurði innilega til hamingju með árangur ársins!
Aðrir tilnefndir:
Árni Björn Pálsson
Daníel Jónsson
Jakob Svavar Sigurðsson
Teitur Árnason
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson