Fræðslukvöld 8. mars: Litir hrossa og erfðir á þeim
Á fræðslukvöldi Endurmenntunar LbhÍ verður farið yfir helstu hrossaliti og erfðum þeirra lýst. Myndir verða mikið notaðar og raunveruleg dæmi tekin til útskýringar. Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning á helstu atriðum litaerfðanna. Fyrir allar áhugasama!
Kennari: Guðni Þorvaldsson frá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Stund og staður: Mán. 8. mars Kl. 19:30-22:00 í matsal, Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Verð: 1500 kr. Mikilvægt er að skrá sig á [email protected] eða í síma 433 500 og greiða fyrirfram á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Munið að senda kvittun með skýringu á [email protected].
Mikilvægt er að ganga frá skráningu og millifærslu þátttökugjalds fyrir mánudaginn!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH