Glódís Rún og Kamban efst

  • 16. ágúst 2012
  • Fréttir
Glódís Rún og Kamban efst

Glódís Rún Sigurðardóttir er efst eftir forkeppni í fjórgangi í barnaflokki. Glódís var á stóðhestinum Kamban frá Húsavík og hlutu þau einkunnina 6,33. Glódís og Kamban þarf vart að kynna tvöfaldir Landsmótsigurvegarar og fjórfaldir Íslandsmeistarar. Á eftir Glódís er hin knáa Rúna Tómasdóttir á hestinum Brimil frá Þúfu í Landeyjum en þau hlutu einkunnina 6,20. Þriðji er svo hann Arnar Máni Sigurjónsson á Töfra frá Þúfu í Landeyjum með einkunnina 5,73

Niðurstöður úr fjórgangi í barnaflokki:
 
Sæti   Keppandi
1   Glódís Rún Sigurðardóttir / Kamban frá Húsavík 6,33
2   Rúna Tómasdóttir / Brimill frá Þúfu í Landeyjum 6,20
3   Arnar Máni Sigurjónsson / Töfri frá Þúfu í Landeyjum 5,73
4   Védís Huld Sigurðardóttir / Flóki frá Þverá, Skíðadal 5,70
5   Annika Rut Arnarsdóttir / Gáta frá Herríðarhóli 5,67
6   Anton Hugi Kjartansson / Sprengja frá Breiðabólsstað 5,63
41098   Sigurlín F Arnarsdóttir / Jörundur frá Herríðarhóli 5,50
41098   Þórunn Ösp Jónasdóttir / Ösp frá Litlu-Sandvík 5,50
9   Kristófer Darri Sigurðsson / Krummi frá Hólum 5,40
10   Katrín Eva Grétarsdóttir / Flinkur frá Vogsósum 2 4,47
11   Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir / Pele frá Árbæ 2,87

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link