Frá Meistaradeild – Fjórða liðið kynnt til leiks.
Fjórða liðið sem við kynnum til leiks er jafnframt elsta liðið í deildinni en það er lið Lýsis. Liðið hefur tekið þó nokkrum breytingum frá því á síðasta ári…
Liðsstjórinn í ár er sá sami og í fyrra Sigurður Sigurðarson en með honum eru þau Sigurður Óli Kristinsson, Sigurbjörn Bárðarson og Olil Amble.
Sigurður Sigurðarson, liðsstjóri, rekur tamningastöð á Þjóðólfshaga ásamt eiginkonu sinni. Sigurður er fyrsti sigurvegari Meistaradeildarinnar en hann sigraði hana árið 2001. Hann hefur setið nokkrum sinnum í íslenska landsliðinu, er heimsmeistari, margfaldur Íslandsmeistari, heimsmethafi í 100m skeiði og mætti lengi telja áfram.
Sigurbjörn Bárðarson er sá knapi sem hefur oftast sigrað Meistaradeildina eða þrisvar sinnum, árin 2002, 2009 og 2010. Hann hefur jafnframt oftast sigrað einstaka grein í deildinni eða 14 sinnum. Sigurbjörn hefur hampað flest öllum titlum sem hægt er að vinna í hestaíþróttum ásamt því að vera eini hestamaðurinn sem hefur hampað titlinum íþróttamaður ársins.
Sigurður Óli Kristinsson stundar tamningar og þjálfun að Fákshólum, Ásahrepp. Sigurður hefur átt góðu gengi að fagna í keppni á undanförnum árum og riðið til úrslita á landsmótum og Íslandsmótum ásamt því að vera að gera góða hluti í kynbótasýningum.
Olil Amble rekur alhliða hestamiðstöð undir nafninu Gangmyllan að Syðri-Gegnishólum í Flóahrepp ásamt Bergi Jónssyni. Olil hefur setið í íslenska landsliðinu, er heimsmeistari, margfaldur Íslandsmeistari ásamt mörgum öðrum glæstum sigrum.
Lýsi var stofnað 1938. Það framleiðir afurðir úr lýsi til manneldis. Sem leiðandi fyrirtæki á heimsvísu leggur Lýsi mikla áherslu á gæði og gæðastjórnun við framleiðslu vörunnar. Í apríl 2007 fékk Lýsi Útflutningsverðlaun forseta Íslands. Fyrirtækið fékk verðlaunin „fyrir þann einstaka árangur sem fyrirtækið hefur náð í sölu- og markaðsmálum á afurður úr lýsi og fyrir þá framsýni sem fyrirtækið hefur sýnt í vöruþróun og eflingu þekkingar og færni á sínu sviði.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH