Ræktunarverðlaun ársins
Fagráð í hrossarækt hefur valið þau bú/ræktendur sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands fyrir ræktunarárangur. Tilnefnd voru 10 bú og er Torfunes eitt af þeim búum sem tilnefnd voru. Í Torfunesi hefur verið stunduð hrossarækt um árabil. Hornsteinn ræktunarinnar er Toppa frá Rangá en langsflest hrossin í ræktuninni eru útaf henni. Aðalmarkmið ræktunarinnar er að rækta geðgóð, fagurlega sköpuð og fjölhæf alhliða hross sem henta öllum unnendum íslenska hestsins
Eftirtalin hross fædd í Torfunesi voru sýnd í kynbótadóm 2013.
Vissa is2007266201 sköpulag 8,29 kostir 8,23 aðaleinkunn 8,26.
Verdí is2008166200 ————- 8,04 ——– 8,07 —————– 8,06.
Karl is2008166211 ————- 8,48 ——– 7,87 —————– 8,11.
Pollíana is2009266210 ———— 8,16 ——- 7,78 —————- 7,93.
Leistur is2008166201 ————- 8,16 ——- 7,95 —————- 8,04.
Ljúfur is2008166207 ————- 8,04 ——- 8,50 ————— 8,32.
Muska is2006266211 ————– 8,48 ——- 7,82 ————— 8,08.
Bergþóra is2006266214 ———– 8,09 ——- 8,02 ————— 8,05.
7 þessara hrossa eru útaf Toppu frá Rangá
Þetta er hópurinn sem tilnefning byggir á og viljum við í Torfunesi þakka öllum þeim er aðstoðuðu okkur við að gera þennan árangur svo góðan sem raun ber vitni. Sérstakar þakkir viljum við færa Mette Mo Mannseth og Gísla Gíslasyni á Þúfum, en þau hafa verið ráðgjafar í þjálfun, ræktun og sýningum hrossana undanfarin ár.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH